Close

Svona gerum við

Námsefni

Nýtt námsefni í upplýsingatækni væntanleg frá Námsgagnastofnun

Á kynningardegi Námsgagnastofnunar sem haldinn verður í Árbæjarskóla miðvikudaginn 20. ágúst nk. mun ég opinbera nýja íslenska handbók í Sketchup teiknihugbúnaðinum magnaða frá Google. Handbókin verður aðgengileg án endurgjalds á vef Námsgagnastofnunar á pdf sniði.

Handbókinni er ætlað að veita almennt yfirlit yfir helstu aðgerðir Sketchup forritsins og er það von mín að útgáfan verði til þess að kennarar grípi tækifærið og nýti þennan skemmtilega hugbúnað í kennslu. Þessa dagana er ég að vinna að stuttum myndskeiðum sem styðja við efni bókarinnar og verða birt á YouTube vefnum í náinni framtíð. Sýnishorn af efni handbókarinnar má sjá hér að neðan.

Sýnishorn af Google Sketchup námsefninu

Google Sketchup er þrívíddarteikniforrit og sem slíkt einstaklega aðgengilegt og auðvelt í notkun. Ég hef notað þennan hugbúnað lengi með nemendum mínum á Starfsbraut FB og það kemur mér alltaf skemmtilega á óvart hversu snögg þau eru að tileinka sér virkni þess og endalausa möguleika. Það er satt best að segja með ólíkindum hversu litla þjálfun þau þurfa í undirstöðuatriðum forritsins áður en ímyndunaraflið og sköpunarkrafturinn tekur öll völd.

Ég vil taka það fram að þegar ég segist vonast eftir góðum viðtökum kennara á ég ekki einungis við upplýsingatæknikennara. Hvernig væri nú að fara að fordæmi nemenda minna á starfsbraut og leyfa huganum að reika aðeins og velta fyrir sér þeim margvíslegu notum sem hafa má af svo öflugu verkfæri sem auk þess má sækja endurgjaldslaust á Netið. Hvað með stærðfræði, er ekki pláss fyrir þrívíddarteikningar á þeim vettvangi? Hvað með listmennt og smíði? Hvað með félags- og sagnfræði? Frumkvöðlafræði?

Persónuleg reynsla mín af notkun Sketchup er ekki einungis sú að þarna fari mjög nytsamlegt forrit í ýmsum námsgreinum heldur hef ég orðið áþreifanlega var við hvernig sumir nemendur blómstra í námi þegar áherslan er ekki öll á bókina. Auðvitað er það engin opinberun fyrir kennara sem vita fullvel að hefðbundnar kennsluaðferðir og námsefni ná enganveginn að virkja alla nemendur. En hvernig væri að reyna að gera eitthvað í því?

Auk handbókarinnar í Google Sketchup mun ég þann 20. ágúst kynna sérstaka verkefnavinnu sem ég nefni Listaverkið Jörð og hef nýtt í nokkurn tíma með nemendum mínum á Starfsbraut FB. Námsgagnastofnun mun einnig gefa út leiðbeiningar sem tengjast þeim verkefnum.

Frumkvæðið að þessari útgáfu á Ásta Kristjana Guðjónsdóttir, ritstjóri hjá Námsgagnastofnun. Hún er reyndar að hætta störfum þar sem er miður. Námsgagnastofnun veitir ekkert af framsýnu fólki sem er óhrætt að að taka ögrandi ákvarðanir og feta nýjar slóðir. Mætti að ósekju vera meira af slíkum í menntakerfinu.

Ég veit að Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnsóla á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar ætlar að kynna nýjan kennsluvef í ritvinnslu sem nefnist Ritfús (skemmtilegt nafn). Vigfús hefur frætt mig dálítið um framtakið og er ég mjög spenntur að sjá afraksturinn. Ég hvet ykkur sérstaklega til að skoða Skólavefritið sem er fréttablað Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar um málefni grunnskóla og Vigfús er ábyrgur fyrir.

Athugið að skráningu á viðburði kynningardagsins hjá Námsgagnastofnun lauk þann 15. júní sl. Því miður þurfti að fella niður fjölmargar áhugaverðar kynningar vegna dræmrar þátttöku.


Tengt efni

  1. Sigurður Jónsson09-27-08

    Ég var að kíkja á vef Námsgagnastofnunnar og fann ekkert.

  2. sfjalar09-28-08

    Hér er frétt á vef Námsgagnastofnunar um þetta nýja efni.
    Upplýsingatækni 8.-10. bekkur

  3. Sigurður Jónsson09-28-08

    Takk kærlega, þetta kemur til að nýtast mér vel í kennslunni í vetur.

Skráðu athugasemd