Æfðu þig í fingrasetningu og vélritun á Netinu

Skrifað 17. July 2008
Flokkur: hugbúnaður
4 Athugasemdir frá lesendum

Touch Typing nefnist einfaldur, netbundinn hugbúnaður (flash) sem ég nota gjarnan með nemendum mínum, þeim sem þurfa á að halda að æfa sig í fingrasetningu og vélritun. Eins ágætt og forritið er þá hefur það einn stóran galla, það vantar tilfinnanlega íslenskt lyklaborð. Í von um að bæta úr þessu skrifaði ég höfundinum Ezra Molkho sem nú hefur brugðist við beiðni minni og gefið út séríslenska útgáfu.

Touch Typing er einfalt forrit en um leið glettilega öflugt og hentar mjög vel nemendum á öllum aldri. Notendaviðmótið er mjög aðgengilegt með stórum stöfum og skýrum myndum (af lyklaborðinu). Einfalt er að skipta um bakgrunnslit en sá kostur getur t.d. komið sér vel fyrir notendum með sértæka lesörðugleika.

Eftir að Touch Typing hefur verið ræst er tungumál valið vinstra megin á skjánum, þegar þetta er ritað er hægt að velja úr 18 tungumálum sem sum eru einnig til í nokkrum útgáfum.

Þegar íslenskan hefur verið tilgreind birtist skjár þar sem valin er ein af 15 æfingum sem forritið inniheldur eða texti að eigin vali afritaður í textareit á miðjum skjánum (t.d. frá Netútgáfunni eða þessar). Fyrstu 6 æfingarnar innihalda æfingar sem þjálfa einstaka bókstafi. Frá og með æfingu 7 er farið að vinna með heildstæðan texta. Ég hef lofað Ezra að senda honum íslenskan texta til að birta í þessum æfingum og mun gera það.

Æfingarnar í Touch Typing byggja á því að notandinn vélritar texta sem birtist efst á skjánum og skrunar til vinstri eftir því sem fram vindur. Forritið gefur til kynna með lit og undirstrikun hvaða staf á að slá inn í hvert skipti. Þegar villa verður við innslátt gefur forritið til kynna á myndrænan hátt hvaða staf átti að velja og einnig hvaða fingur á að nota við að slá hann inn.

Hægt er að láta hugbúnaðinn mæla vélritunarhraðan um leið og æfing er unnin. Til þess er smellt á “Speed Indicator” hnappinn neðarlega til hægri á skjánum. Birtist þá teljari efst á skjánum og mælistika til vinstri. Smellt er á “Exit” hnappin neðst í hægra horni til að hætta í æfingu og velja nýja, þ.e. ef viðkomandi æfing er ekki fullunnin.

Ég þarf varla að taka það fram að Touch Typing er aðgengilegt endurgjaldslaust á Netinu (ekki sóttur heldur keyrður í vefskoðara). Ég hvet kennara til að kynna sér þennan hugbúnað, bæði til að nota í skólastofunni og einnig benda nemendum á sem hentugan valkost til að æfa vélritun heima.

Annað áhugavert efni sem tengist vélritun og hefur orðið á vegi mínum á Netinu er t.d.:

Allar frekari ábendingar um efni á Netinu sem tengist vélritun eru vel þegnar.


Tengt efni

4 athugasemdir við “Æfðu þig í fingrasetningu og vélritun á Netinu”

  1. Sverrir Páll skrifar:

    Komdu sæll.

    ég rakst á þessa síðu og langaði til að reyna, en ég fæ ekki íslenska stafi. Þ er alltaf skástrik. Spurning hvort tölvutegund skiptir máli en ég nota núna MacBook.
    kv
    svp

  2. Þorbjörg Garðarsdóttir skrifar:

    Sæll Fjalar
    Frábært hjá þér að fá Molkho til að setja inn íslenska stafi ;-)
    kv. Þorbjörg

  3. Guðjón H. Hauksson skrifar:

    Þetta er rétt sem Sverrir Páll bendir á. Þetta þýðir ekkert að gera á makka, hvort heldur er í Safari eða Firefox. Þetta á bæði við um Touch Typing og rettritun.is. En þetta eru stórfínar æfingar og mjög bitastætt fyrir fólk sem vill bæta hraðann.

  4. Óskar Birgisson skrifar:

    Hæ hæ
    Ég hef verið að prufa þetta hér með nemendum mínum. Svo virðist sem ekki sé hægt að skrá sér íslenska stafi eins og Þ og ð
    Kveðja
    Óskar

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni