Félagshæfnisögur með Comic Life

Skrifað 04. August 2008
Flokkur: hugbúnaður
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég hef áður skrifað um Comic Life sem er einstaklega vel heppnaður hugbúnaður til að setja saman myndaseríur, teiknimyndasögur, leiðbeiningar eða myndrænar frásagnir af hverju sem er. Nýlega komst ég að því að kennarar eru að nota Comic Life með góðum árangri til að setja saman svokallaðar félagshæfnisögur (social stories). Þetta vakti forvitni mína.

Um félagshæfnisögur

Félagshæfnisögur eru stuttar frásagnir sem lýsa aðstæðum, bæði með texta og myndum. Félagshæfnisögur eru gjarnan notaðar með einstaklingum sem eiga í erfiðleikum með að skipuleggja og læra á daglegt líf, s.s. einhverfum. Félagshæfnisögur koma oft að góðum notum þegar útskýra þarf aðstæður sem bregða út af hefðbundinni rútínu. (sjá:http://nemendur.khi.is/hallhinr/lokaverkefni.htm). Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn af félagshæfnisögu.

Félagshæfnisögur má rekja til hugmynda Carol Gray og hefur hún reyndar gengið svo langt að verja uppgötvun sína með því að skrá hugtakið “Social story” sem vörumerki. Hugnast mér sú gjörð frekar illa. Frekari upplýsingar um Gray má finna á vef Gray stofnunarinnar.

Halla Steinunn Hinriksdóttir hefur sett saman ágætan kennsluvef um félagshæfnisögur og gerð þeirra og mæli ég með því að áhugasamir kynni sér hann. Nokkur góð dæmi um félagshæfnisögur má einnig finna hér.

Félagshæfnisögur búnar til

Félagshæfnisögur eru gjarnan skrifaðar af fólki sem vinnur náið með viðkomandi einstakling, s.s. foreldrum eða fagfólki. Aðgangur að hentugum verkfærum sem eru einföld í notkun og auðvelda og flýta fyrir þeirri vinnu getur komið sér mjög vel. Hér kemur ýmislegt til greina. Algengt er að nýta hefðbundna ritvinnslu þegar félagshæfnisögur eru settar saman, en framsetningarforrit eins og Powerpoint og jafnvel einfaldur umbrotshugbúnaður líkt og Publisher gagnast líka ágætlega.

Kosturinn við að nota hugbúnað á við Comic Life til þess að setja saman félagshæfnisögur er augljós. Comic Life er ódýrt og auðlært og einfaldar mjög samþættingu mynda og texta. Myndasöguformið höfðar einnig til margra og ekki þá síst hin sjónræna framsetning frásagnarinnar. Comic Life er fáanlegt bæði fyrir Windows og Macintosh notendur.

Það væri fróðlegt að vita hvort einhver hér á landi notar Comic Life á þennan hátt?

Heimildir

2007 Anna Elín Svavarsdóttir og Katrín Indiana Valentínusdóttir Barnið þitt er með einhverfu og hvað svo? Rannsókn byggð á upplifun mæðra af þjónustu sem börn þeirra fá/fengu í leik- og grunnskóla síðastliðin þrjátíu ár.
http://skemman.khi.is/bitstream/1946/687/1/Heildarskjal.pdf

Kennsluvefur um félagshæfnisögur
http://nemendur.khi.is/hallhinr/lokaverkefni.htm

Félagshæfnissögurnar hennar Gabríellu Kamí
http://www.nt.is/~hildura/hatta.htm

Senda færslu Senda færslu

Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman