Diigo – félagslegt tengslanet og gagnasöfnun

Skrifað 11. August 2008
Flokkur: Uncategorized
Engar athugasemdir frá lesendum

Diigo tengslanetið hefur notið jákvæðrar umfjöllunar netverja síðustu vikur og mánuði og þykir m.a. koma að góðum notum við söfnun og miðlun gagna hvort sem það er í persónulegum tilgangi eða faglegum. Ég ákvað láta reyna á þessa þjónustu og verð að segja að mér líst bara nokkuð vel á.

Diigo er á flestan hátt hefðbundið tengslanet t.a.m. hvað varðar uppbyggingu netsamfélagsins og samskipti við aðra meðlimi. Samskiptahættir á tengslanetum eru orðnir nokkuð fastmótaðir og “vinakerfið” velþekkt og þrautreynt á fjölsóttum samfélagsvefjum eins og MySpace og Facebook. Diigo býður upp á helstu eiginleika þeirra en bætir engu við.

Sérstaða Diigo gagnvart síðastnefndu samfélögunum tveimur í það minnsta felst hins vegar í því að auk samfélagslegra þátta þá er Diigo einnig öflugt verkfæri til þess að skrá og safna hverskyns gögnum til einkanota eða til að miðla öðrum.

Gagnasöfnun með Diigo

Diigo er öðrum þræði netbundið bókamerkjasafn þar sem hægt er að skrá lykilorð (tagga) og lýsingu við hverja færslu, ekki ósvipað og fjölmargar þjónustur aðrar, s.s. Delicious, Furl og Spurl (hin íslenska) og hvað þær nú heita allar. Kostir slíkra safna eru þeir helstir að innihald þeirra er aðgengilegt hvenær og hvar sem nettenging er til staðar og oftar en ekki er hægt að fá innsýn í bókamerki annarra notenda.

Diigo hefur þann eiginleika umfram umræddar þjónustur að hægt er að afmarka ákveðin hluta skjals, t.d. mynd eða textabút, og skrá athugasemdir (e. comments) við einungis þann hluta, einn eða fleiri í hverju skjali. Þetta er öflugur kostur en ekki nýtilkominn heldur þar sem þjónustur á við Evernote og Clipmarks bjóða einnig upp á slíkt. Evernote er reyndar mjög áhugaverður kostur sem ég er einmitt að skoða betur um þessar mundir.

Diigo bókamerki

Diigo samfélagið

Styrkleiki Diigo er sá helstur að þjónustan sameinar tvær afbragðs hugmyndir, þ.e. netbundna gagnasöfnun og hýsingu og hefðbundin tengslanet. Diigo er þannig kjörið verkfæri fyrir einstaklinga og hópa sem vilja skrá og safna hverskyns gögnum, miðla og fjalla um sín á milli. Líkt og á öðrum netbundnum samfélögum er einfalt að stofna hópa (e. groups) um afmörkuð viðfangsefni og eru fjölmörg slík minni samfélög starfandi á Diigo í dag.

Skjámynd af Diigo samfélagi

Innan hópa er hægt að stofna umræður og auk þess geta notendur kosið að fá reglulega senda tölvupósta sem innihalda upplýsingar um ný gögn sem meðlimir hópsins hafa viðað að sér valið að deila með samfélaginu. Ég get vel ímyndað mér að þetta fyrirkomulag gæti hentar rannsóknarhópum í gagnasöfnum eða nemendum í hópavinnu.

Diigo er einfalt og sjálfsagt verkfæri fyrir þá sem eru hagvanir nútíma félagsvefjum og enn auðveldara viðfangs ef viðkomandi þekkir til netbundinna bókamerkjaþjónusta. Diigo er ágæt leið til að skapa og viðhalda tengslaneti, t.d. fagaðila á ákveðnum vettvangi. Diigo er að sama skapi kjörið verkfæri til að mynda ný tengsl og kanna áður óþekktar slóðir. Það er allavega alveg þess virði að reyna – enda kostar það ekkert.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni