Close

Svona gerum við

Námsefni

Stafrænt frelsi í ríkisstofnunum

Endurmenntun Háskóla Íslands stendur fyrir áhugaverðu námskeiði um frjálsan og  opinn hugbúnað í haust. Á námskeiðinu verður leitast við að kynna nýútkomna stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað og skoða hvaða afleiðingar hún hefur á upplýsingatækni á Íslandi.

Námskeiðslýsingin er eftirfarandi

Síðastliðið vor kom út stefna stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað. Stefnan nær til allra ríkisstofnanna og félaga sem rekin eru fyrir opinbert fé. Stefna stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað mun breyta ýmsu í landslagi upplýsingatækni bæði innan og utan ríkisstofnanna. Í stefnunni er, eins og nafnið gefur til kynna, sagt til um hvernig ríkisstofnanir skuli takast á við frjálsan hugbúnað og opinn hugbúnað.

Námskeiðið leitast við að kynna stefnu stjórnvalda og skoða hvaða afleiðingar hún hefur á upplýsingatækni á Íslandi. Námskeiðið kynnir hugtökin tvö, frjálsan hugbúnað og opinn hugbúnað, til hlítar og fjallar um ýmis málefni tengd þeim. Auk þess verður einnig lauslega koma inn á önnur svið sem tengjast frjálsum og opnum hugbúnaði eins og t.d. opna staðla, frjálsa þekkingu, opna menntun og frjálsa menningu.

Námskeiðinu er bæði beint að tölvunotendum og tæknifólki og því verður reynt að halda tæknilegum smáatriðum í lágmarki og styðjast í stað þess við ýmis dæmi úr hversdagslífinu og hefðbundinni tölvunotkun.

Markmið námskeiðsins er að kynna þátttakendum frjálsan hugbúnað, opnin hugbúnað og stafrænt frelsi í heild sinni. Sérstaklega verður lögð áhersla á að þátttakendur kynnist stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað og skilji þau áhrif sem hún hefur á ríkisstofnanir. Að loknu námskeiði munu þátttakendur vera meðvitaðri um fjölbreytileika og frelsi í stafrænum heimi og þar með vera hæfari til þess að fá meira út úr daglegri tölvunotkun.

Hér er að mínu mati kominn kjörinn vettvangur fyrir skólastjórnendur og aðra sem tengjast upplýsingatækni í skólastarfi að kynna sér möguleika frjáls og opins hugbúnaðar.

Umsjón með námskeiðinu hefur Tryggvi Björgvinsson. Skráningform og frekari upplýsingar má finna á vef Endurmenntunar HÍ.


Tengt efni

Skráðu athugasemd