Close

Svona gerum við

Námsefni

Photosynth opnar

Microsoft Photosynth hefur opnað dyr sínar almenningi og hafa viðtökurnar verið slíkar að loka þurfti þjónustunni um tíma. Fyrir þá sem ekki hafa lesið fyrri skrif mín um Photosynth þá er hér á ferðinni hugbúnaður sem gerir notendum kleift að skoða stafrænar ljósmyndir í tuga eða hundruðatali frá mörgum ólíkum notendum sem tengdar eru saman í þrívíðu umhverfi.

Ég hvet alla þá sem ekki hafa nú þegar upplifað Photosynth að bregða sér á Photosynth.net og sjá með eigin augum hverskonar undur þarna er á ferðinni. Það er eiginlega erfitt að lýsa því með orðum hvernig hægt er að feta sig á milli stakra ljósmynda í þrívíðum heimi tölvunnar. Það er sannarlega engu líkt og loksins að Microsoft getur skákað keppinautum sínum í Google svo um munar. Nýjustu fréttir herma að teymið innan Microsoft Live Labs sem er ábyrgt fyrir Photosynth taki nú höndum saman með hönnuðum Virtual Earth, útgáfu Microsoft af Google Earth. Það verður gaman að fylgjast með hvað kemur út úr þeirri samvinnu enda eru möguleikarnir nánast óþrjótandi.

Photosynth hugbúnaðurinn sem Microsoft býður nú almenningi endurgjaldslaust er tvíþættur. Annars vegar skoðari sem er viðbót (plugin) við annað hvort Internet Explorer eða Firefox vafrann og hins vegar hugbúnaður sem sóttur er á Netið og notendur nýta til að skapa eigin þrívíðar sýningar. Notendur, þ.e. þeir sem vilja skapa en ekki bara skoða, þurfa einnig að skrá sig hjá Microsoft (Windows Live ID). Skráningunni fylgir 20GB pláss fyrir myndir.

Mitt eigið Photosynth

Um leið og ég frétti að Photosynth var komið úr betaútgáfu og opið almenningi skráði ég mig fyrir aðgangi og sótti hugbúnaðinn til að koma eigin ljósmyndum í þrívítt form. Það kom mér nokkuð á óvart hversu einfalt það er að setja saman Synth, eins og það er kallað, í raun bara spurning um að velja myndirnar sem ætlunin er að nota eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Einnig er hægt að velja um notendaleyfi en athugið að allar sýningarnar eru opnar á Netinu hvað leyfi sem valið er.

Sýning búin til í Photosynth

Galdurinn fer greinilega allur fram á vefþjónum Microsoft og ég get rétt ímyndað mér að til þess þurfi öflugan tækjabúnað að vinna úr öllum þessum ljósmyndum. Á hinn bóginn virðist þessi aðgerð ætla að taka töluverðan tíma því nú hef ég beðið í nokkrar klukkustundir og ekkert bólar á myndunum mínum. Vafalítið má um kenna þeirri gríðarlegu athygli sem þessi nýjung hefur hlotið. Ég reyni aftur síðar.

Hér fyrir neðan má sjá mjög gott kynningarmyndskeið þar sem því er líst frá upphafi til enda hvernig Photosynth er sett saman. Mæli með þessu myndskeiði.

Hér á líka að vera hægt að sækja leiðbeiningar á pdf sniði en eitthvað hefur það líka gengið illa hjá mér og kenni ég yfirgengilegri traffíkinni aftur um.

Enn sem komið er þá er Photosynth einstaklingsbundin þjónusta, þ.e. ekki er hægt að setja saman sýningar með myndum frá mörgum notendum. Sú virkni er vonandi væntanleg. Einungis fyrir Windows XP eða Vista notendur. Stuðningur við Macintosh er víst á dagskránni. Ég bíð einnig spenntur eftir því að hægt verði að tengja Photosynth við Flickr og aðrar álíka þjónustur. Trúi ekki öðru en það verði mögulegt í náinni framtíð. Þangað til ætla ég að halda áfram að búa til mína eigin myndasýningu í Photosynth. Ég læt ykkur vita um leið og það heppnast.


Tengt efni

  1. Arnþór Snær08-21-08

    MS eiga hrós skilið fyrir að veita þessu verkefni brautargengi. Hlakka til að sjá íslensk “Synth” (samsuða/samsuður?).

Skráðu athugasemd