Nú má Powerpoint passa sig

Skrifað 31. August 2008
Flokkur: hugbúnaður
4 Athugasemdir frá lesendum

Fyrir stuttu fékk ég aðgang að lokuðum betaprófnum á Sliderocket, netbundnum hugbúnaði sem ég í sakleysi mínu hélt vera enn einn frumstæðan Powerpoint klóninn. Nú er ég reynslunni ríkari og fullyrði að hér er á ferðinni lausn sem gæti hæglega komið í stað Powerpoint í kennslu jafnt og öðrum vettvangi. Spurningin er bara hvers vegna ættu kennarar að skipta út Powerpoint?

Hvaða eiga Google Docs, 280 slides, Zoho Show, Empressr og PreZentit sameiginlegt. Jú, allt eru þetta lausnir sem hafa sama eða svipuðu hlutverki að gegna á Netinu og Microsoft Powerpoint ( eða Keynote) gegnir uppsett í tölvum notenda. Og þetta er einungis brot af þeim hugbúnaði sem ætlar sér þú ekki væri nema agnarögn af gríðarlegri markaðshlutdeild Powerpoint. Ég hefð það fyrir satt að samkvæmt Microsoft verði á hverjum degi til allt að 30 milljón Powerpoint kynningar þannig að á þessum markaði er örugglega eftir miklu að slægjast.

Til atlögu við Microsoft

Þegar lagt er til atlögu við Microsoft er ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og staðreyndin er sú að hvað Powerpoint varðar þá hefur hingað til enginn haft erindi sem erfiði. Jafnvel fjársterkt ofurfyrirtæki eins og Google með öllu sínu hæfileikaríka starfsliði hefur látið sér nægja að markaðssetja svo frumstætt framsetningarforrit að það er varla umfjöllunarinnar virði, enda lítið sem ekkert notað. Á hinn bóginn búa þessar lausnir yfir miklum sóknarfærum og þá helst þær sem nýta sér eiginleika og kosti Netsins þar sem hefðbundinn hugbúnaður á erfiðara um vik að nálgast. Hér á ég við möguleika á miðlægri hýsingu, dreifingu, birtingu, samvinnu notenda og tengingu við aðrar þjónustur á Netinu.

Sliderocket er ágæt vísbending um að netbundinn hugbúnaður er óða önn að ná þeim þroska að hann geti talist verðugur keppinautur hefðbundinna hugbúnaðarlausna. Ólíkt öðrum framsetningarforritum netbundnum er ekki einungis verið að eltast við útlit og virkni Powerpoint heldur skrefið tekið fram á við í því skyni að skapa nýjan vettvang þar sem sameinaðir eru kostir hefðbundins hugbúnaðar og Netsins. Þannig er notendaviðmót Sliderocket ólíkt því sem maður á að venjast í Powerpoint, en engu að síður mjög aðgengilegt og notendavænt. Texta- og myndvinnsla er einföld en er fullkomlega ásættanleg og það þrátt fyrir að um betaútgáfu sé að ræða. Sliderocket nýtir sér einnig eiginleika netsins til fulls eins og sjá má í kynningunni hér að neðan.

Ég hef sjaldan verið eins heillaður af netbundnum hugbúnaði og Sliderocket og satt best að segja sé ég engan tilgang með því að nota Powerpoint í kennslu þegar ég hef annað eins verkfæri fyrir framan mig. Auk allra helstu eiginleika Powerpoint get ég flutt myndir af Flickr beint inn í Sliderocket og varpað myndskeiðum af Youtube eða flashskrám (swf skrám) á glærur. Ég get einnig safnað eigin myndnefni eða myndskeiðum og flokkað með lykilorðum. Þessu myndefni get ég deilt með öðrum notendum hafi ég áhuga á því. Ég get einnig deilt glærum, sniðmátum eða heilu kynningunum með notendum kjósi ég svo. Þessi eiginleiki gerir Sliderocket mjög spennandi í hópstarfi eða sem verkfæri á vinnustað s.s. skóla. Síðast en ekki síst þá get haldið einfalda netkynningar og boðið til þeirra ótakmörkuðum fjölda notenda. Það er nú eitthvað sem hentar vel í skólakerfinu.

Áhugasamir geta skráð sig fyrir betaaðgangi hér, en það skal tekið fram að ég þurfti að bíða nokkuð eftir að fá inngöngu. Vonandi tekur það ekki lengur eins langan tíma. Varðandi framtíð þjónustunnar þá geri ég ráð fyrir að betaprófunum fari að ljúka innan tíðar og miðað við þær upplýsingar sem fást í sjálfu kerfinu þá verður boðið upp á þrískiptan aðgang, þ.e. frían aðgang, aðgang fyrir einstaklinga og aðgang fyrir fyrirtæki. Ég veit ekkert um verð en ég geri fastlega ráð fyrir mismunandi eiginleikum og hýsingarplássi eftir því hvaða þjónustuleið er valin. Það er bara vonandi að verðið verði eins aðlaðandi og lausnin sjálf.


Tengt efni

4 athugasemdir við “Nú má Powerpoint passa sig”

  1. Salvor skrifar:

    Takk fyrir þessa grein, þú ert nú æðsti gúru landsins í powerpoint heilkenninu og hefur stúderað mest glæruvæðingu landans :-)

  2. Torfi skrifar:

    Heill og sæll, Fjalar,

    takk fyrir góða kynningu á spennandi búnaði til nota í skólastarfi!

    Torfi

  3. Helgi skrifar:

    Ég prófaði þetta og ég virðist ekki geta notað séríslensku stafina þ og ð??

    Takk annars fyrir góðan vef, kíki hingað reglulega.

  4. sfjalar skrifar:

    Ég hef ekki lent í vandræðum með séríslenska bókstafi. Sjá t.d. hér :
    http://app.sliderocket.com/app/FullPlayer.aspx?id=7286C377-EEC8-2D20-DA81-185EB2BF63E3

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni