Ég held mikið upp á þann eiginleika Flickr að geta stofnað hópa (e. groups) utan um afmörkuð viðfangsefni eða sérstök áhugamál og hef m.a. nýtt þann kost í kennslu. Hér er t.d. hægt að sjá hóp sem ég stofnaði utan um ákveðin verkefnaskil nemenda í stafrænni myndvinnslu.
Ein ágæt leið til að skoða myndir af íslandi felst einmitt í því að kynna sér hópa þar sem safnað er saman myndum af Íslandi. Hér eru nokkrir áhugaverðir hópar sem ég er meðlimur í:
- Iceland – Landscape
- Icelandic sunset and clouds
- Flickr@Iceland
- Icelandic landscape images
- Íslensk fjöll / Icelandic mountains
- Reykjavik
- Beautiful Iceland
- ICELANDs incredible colours and weather-moods
- National Geographic – Iceland
- Icelandic waterfalls – Íslenskir fossar
Að sjálfsögðu eru miklu fleiri staðir á Flickr að skoða sem innihalda ljósmyndir af Íslandi, en þessir eru ágætis byrjun á skemmtilegu ferðalagi um þennan magnaða vef. Ég á það til að gleyma mér gjörsamlega þegar ég byrja að skoða myndir og þá sérstaklega íslenskar landslagsmyndir.
Um leið og þið vafrið um þessa hópa á Flickr væri ekki úr vegi að kynna sér möguleika Flickr í kennslu og skólastarfi. Við á Starfsbraut FB höfum t.d. safnað myndum af skólastarfinu allt frá því brautin var stofnuð fyrir 10 árum síðan. Hér fyrir neðan má t.d. sjá myndir úr nýlegri Laugarvegsgöngu sem nokkrir nemendur á Starfsbraut tóku þátt í. Gaman að geta birt myndir úr skólastarfinu á þennan hátt.
Í dag er því aðgengileg á Flickr einstök heimild um starfið á brautinni. Myndirnar nýtast einnig vel í kennslu svo ekki sé talað um hversu gagnlegt það getur verið fyrir nemendur okkar að geta sýnt foreldrum, vinum og kunningjum myndir af því sem fram fer í skólanum. Fyrir suma nemendur er það jafnvel forsenda þess að tjá sig um skóladaginn. Svo eru þeir til sem vilja ekki að myndir séu birtar af þeim á Netinu og að sjálfsögðu virðum við það.


