Stormpulse er vandaður vefur og sérlega myndrænn sem gerir hann hentugan í kennslu þrátt fyrir enskan texta. Ég mæli sérstaklega með skjávarpa og gagnvirkri töflu, en Stormpulse nýtur sín einstaklega vel við slíkar aðstæður.
Á Stormpulse er hægt að fylgjast með fellibyljum allt frá myndun þeirra á úthafinu þangað til þeir lognast útaf, vonandi sem lengst frá mannabyggðum. Á myndinni hér að neðan má t.a.m. sjá slóð Ike sem olli miklu tjóni og mannskaða fyrir ekki svo löngu.
Hér fyrir neðan má svo sjá hvar hinn ógnarsterki fellibylur Katrín varð til og ferð hans yfir Mexíkóflóa að New Orleans sem hann lagði svo í rúst þann 29. ágúst 2005. Takið eftir því að á þessari mynd sést einnig skýjafarið, en það er einn val valkostunum í Stormpulse.
Hér eru svo nokkrir áhugaverðir vefir þar sem fræðast má frekar um fellibylji:
- Um fellibylji á Vísindavefnum
- Af hverju er fellibyljum gefið nöfn? (Vísindavefurinn)
- Fellibyljir á Wikipedia (ísl.)
- Um fellibylji í Lesbók Morgunblaðsins (þarfnast DjVu lesara)




