Picasa 3 er komið út í betaúgáfu. Ég er að kynna mér nýjungarnar og mun skrifa um þær innan tíðar. [Translate]
Flickr er einn sá vefur sem ég heimsæki reglulega mér til gagns og gamans. Oft og iðulega á ég erindi þangað að setja inn eigin myndir en ekki síður til að skoða verk annarra. Sérstaklega hef ég gaman af því að vafra um hin ýmsu söfn íslenskra ljósmynda sem þar er að finna. [Translate]
Arnþór Helgason bloggar um Röggu og segir hana ófullgerða afurð. Ég er alveg sammála. [Translate]
Niðurstöður úr árlegri keppni SlideShare vefsins um bestu glærukynningu heims hafa verið kynntar. [Translate]
Rannís óskar eftir tilnefningum til Vísindamiðlunarverðlauna sem afhent verða á Vísindavöku 2008. [Translate]
Septemberhefti Educational Leadership er komið út og eins og alltaf eru nokkrar greinar opnar á Netinu. [Translate]
Opin Gögn er óformlegt verkefni nokkurra áhugamanna um gagnasöfn og tækifæri sem felast í opnu aðgengi að þeim í formi nýsköpunar og þjóðarhags. Mjög mikilvægt verkefni sem vert er að kynna sér nánar. [Translate]
Athugasemdir