Markmiðið með rannsóknarverkefninu er að leiða í ljós helstu eiginleika, kosti og galla web 2.0, sem fjölmargir kennarar hafa nú þegar hagnýtt á margskonar hátt með nemendum sínum og samkennurum. Að mati sérfræðinga BECTA er mikilvægt að innleiðing á Web 2.0 í skólakerfið grundvallist á traustum rannsóknargrunni, en rannsóknir á þessum vettvangi hafa fram til þessa verið af frekar skornum skammti.
Skýrslurnar eru eftirfarandi:
- Report 1
The current landscape – opportunities, challenges and tensions (May 2008) - Report 2
Learners’ use of Web 2.0 technologies in and out of school in Key Stages 3 and 4 (June 2008)- - Report 3
Implementing Web 2.0 in Secondary Schools: Impacts, barriers and issues (September 2008) - Report 4
E-safety issues in using Web 2.0 (September 2008) - Report 5
Web 2.0 technologies for learning at Key Stage 3 and 4: summary report (September 2008)
Ég hvet áhugafólk um upplýsingatækni í skólastarfi að kynna sér innihald þessara skýrslna. Fyrir rannsakendur og fræðimenn á þessum vettvangi eru þær kærkomnar heimildir sem nýtast ekki síður okkur Íslendingum en Bretum við innleiðingu á nýrri tækni í skólakerfið.
Ég mæli einnig með ágætu yfirliti Hjartar Smárasonar um Web 2.0.


