Open Office 3.0

Skrifað 25. October 2008
2 Athugasemdir frá lesendum

Útgáfa 3.0 af Open Office hugbúnaðarsafninu er komin út og hafa móttökurnar almennt verið jákvæðar ef eitthvað er að marka umfjöllun á Netinu. Open Office 3 inniheldur fjölmargar nýjungar og endurbætur og getur m.a. lesið Microsoft Office 2007 skrár.

Open Office 3 samanstendur af 6 hugbúnaðarlausnum sem allar eru aðgengilegar í gegnum nýja Start Center sem birtist þegar forritið er ræst.

Notendaviðmót Open Office hefur fengið lítilsháttar andlitslyftingu en það verður samt að segja eins og er, að það minnir í alla staði á Microsoft Office 2003 og eldri útgáfur.

Hvort það telst kostur eða galli verða aðrir að meta. Í það minnsta ættu Microsoft Office 2003 notendur ekki að eiga í umtalsverðum vandræðum með að skipta yfir í Open Office hafi þeir áhuga á slíku.
 
Helstu nýjungar í Open Office 3 eru eftirfarandi:
  • Start Center
    Einfaldar aðgang að hugbúnaðinum.
  • Getur lesið Office 2007 skrár (en ekki vistað á því sniði)
    Vert er að benda á að hægt er að sækja viðbót við Microsoft Office sem gerir Microsoft Office notendum kleift að vista skjöl á ODF sniði, sem er skráarsnið Open Office.
  • Hægt að sjá fleiri en eina blaðsíðu í viðbót í Writer og þysja (e. zoom) að og frá í anda Office 2007
  • Athugasemdir birtast nú á spássíu hægra megin líkt og í Microsoft Office.
  • Aukinn hraði
  • Ný teikn (icons)

Ég hef orðið var við greinilegan áhuga á Open Office 3 í íslenska skólakerfinu enda hvað eiginleika varðar þá er hugbúnaðurinn klárlega raunhæfur valkostur við Microsoft Office. Staðreyndin er hins vegar sú að Microsoft hugbúnaður er rótgróinn og nánast ríkisstyrktur hér á landi og því varla hægt að gera sér í hugarlund umfangsmiklar breytingar þar á.

Þökk sé Microsoft hefur þróun staðlamála á þessum vettvangi einnig gert að litlu þann fjarlæga draum að hugbúnaður eins og Microsoft Office og Open Office gætu leitt saman hesta sína á einhverskonar jafnréttisgrundvelli. Á ég þá helst við innleiðingu á samhæfðu skráarsniði sem tryggði að skrár unnar í einum hugbúnaðinum mætti opna og vinna í hinum. Það má því segja að hernaðartækni Microsoft hvað varðar ISO stöðlun á OOXML hafi gengið fullkomlega upp. Því miður.

Hitt er annað mál að útgáfa Open Office 3 sannar enn og aftur að skriðþungi opins og frjáls hugbúnaðar er mikill og hann er að magnast ef eitthvað er.

Ég vil einnig benda á mikilvægi þess í kennslu að kynna fyrir nemendum (og kennurum) aðra valkosti við ritun en staðværan hugbúnað, s.s. netlægar lausnir eins og Google Docs eða Wiki vefi. Þróunin á þeim bænum er ekki síður hröð og spennandi og að margra mati liggur framtíðin einmitt í netlægum lausnum.


Tengt efni

2 athugasemdir við “Open Office 3.0”

  1. Rúnar Haukur skrifar:

    Hefur einhver fundið orðabók fyrir OpenOffice 3.0 og fengið hana til að virka ?

  2. zjons skrifar:

    http://extensions.services.openoffice.org/node/1164

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni