Viðskiptamódel Sliderocket er tvíþætt. Í fyrsta lagi er boðið upp á þrjár áskrifaleiðir, allt frá ókeypis (og mjög takmörkuðum) aðfangi upp í “Business” aðgang sem kostar frá 20$ á mánuði eins. Í öðru lagi geta notendur keypt myndir og í náinni framtíð annað efni til að nota í eigin verkefnum beint í gegnum notendaviðmót Sliderocket. Ég geri ráð fyrir að Sliderocket fái greitt eitthvað lítilræði fyrir hverja slíka færslu og þar sem allur heimurinn er undir gæti þessi nálgun skilað þeim vænum peningi ef allt gengur að óskum.
Eins og fram hefur komið líkar mér mjög vel við Sliderocket og held því staðfastlega fram að þarna sé loksins komin á sjónarsviðið öflug þjónusta sem nýti kosti og eiginleika netsins á þann hátt að vel geti ógnað markaðsstöðu hefðbundinna lausna á sama vettvangi. Á ég þá auðvitað helst við Microsoft Powerpoint.
Sérstaklega er ég spenntur fyrir samvinnukostunum í Sliderocket en öflug samvinna er sá virðisauki sem netlægur hugbúnaður hefur haft umfram hefðbundinn. Aðrir kostir við Sliderocket er einföld miðlun efnis í gegnum Netið.
Mér hugnast hins vegar lítið verðskrá Sliderocket og hvernig pakkarnir eru samansettir. Þannig er ókeypis útgáfan t.d. gersneydd öllum þeim kostum sem gera netlægar lausnir aðlaðandi, s.s samvinnukostina og hið sama má segja um einstaklingsútgáfuna. Þar að auki finnst mér of dýrkeypt að borga 10$ á mánuði fyrir takmarkaða einstaklingsútgáfu svo ekki sé talað um 20$ á mánuði fyrir viðskiptaútgáfuna, sem er einmitt sú útgáfa er hentar skólum best. Reikni hver fyrir sig kostnaðinn fyrir meðalstóran skóla.
Ég veit ekki hvaða afslátt Sliderocket gefur skólum eða öðrum stórnotendum, en til þess að öðlast alvöru markaðshlutdeild verða fyrirtæki sem ætla sér að keppa í einhverri alvöru við rótfastar lausnir að bjóða upp á mun hagstæðari kjör en hér er gert. Ég tala nú ekki um þegar helsti keppinauturinn hefur tilkynnt að hann hugi á eigin netlausnir.
Ég mun örugglega halda áfram að fylgjast með þróun Sliderocket og nýta ókeypis þjónustuna eftir þörfum. Ég er alveg tilbúinn til þess að greiða sanngjarnt verð fyrir svo frambærilega lausn, en ég fæ engan veginn séð hvernig skólar eiga að geta reitt fram 20$ mánaðarlega fyrir hvern notanda hversu aðlaðandi sem hugbúnaðurinn kann að vera.
Þannig er það bara.


