Skipulag og tímastjórnun
GCal Popup
Ég nota Google Calendar til að skipuleggja mig og bóka fundi og annað slíkt. Eftir að ég setti upp GCal Popup get ég galdrað fram Google dagatalið með einum músasmell í Firefox. Gott mál.

Frekari upplýsingar um GCal Popup
Nám og vinna
Zotero
Zotero er virkilega spennandi viðbót við Firefox vafrann sem breytir honum í öflugt verkfæri til að viða að sér og halda utan um hvers kyns heimildir, netlægar eða annarskonar. Zotero er að mínu viti verkfæri sem ætti að kynna fyrir nemendum á framhalds- og háskólastigi þar öflun og markviss úrvinnsla heimilda er grundvallaratriði.

Read it later
Sérlega handhæg viðbót fyrir netverja eins og mig sem gjarnan rekst á áhugaverð skrif á Netinu, en verður að geyma lestur þar til betri tíma. Ég hef margoft reynt að bókamerkja áhugaverðar færslur til aflestrar síðar meir, en allt kemur fyrir ekki. Read it later virkar mun betur.

Frekari upplýsingar um Read it later
Kennsla
Cooliris (áður Piclens)
Ég nota þessa viðbót með nemendum mínum á starfsbraut FB þar sem ljósmyndir eru ríkur þáttur í kennslunni. Cooliris opnar alveg nýja framsetningu á myndum og mæli ég sérstaklega með því að kennara sem hafa aðgang að gagnvirkum töflum kynni sér kosti þessarar viðbótar.

Frekari upplýsingar um Cooliris
Blogg
Scribefire
Stórsniðug og tímasparandi viðbót sem ég mæli með fyrir alla bloggara. ScribeFire er afbragðs ritill sem er framkallaður með einum músasmelli í Firefox. ScribeFire inniheldur alla helstu aðgerðir nauðsynlegar bloggurum og auðvelt er að tengja hann við t.d. WordPress vefi eins og tilfellið er hjá mér. Ég hef notað þessa viðbót lengi vel við bæði stuttar og langar bloggfærslur.

Frekari upplýsingar um Scribefire
Twitterbar
Að mínu viti er Twitterbar langbesta Firefox viðbótin til að skrá færslur á Twitter. Skráðu textann þar sem þú slærð inn vefslóðir og smelltu á græna hnappinn til hægri. Gæti ekki verið einfaldara.
Frekari upplýsingar um Twitterbar
Vefsmíðar
ColorZilla
ColorZilla er einfalt en öflugt verkfæri sem býður upp á litgreiningu á hvaða punkti sem er í vafranum. ColorZilla finnur fljótlega hvaða liti verið er að vinna með og eftir að litur er fundinn er hægt að líma (paste) hann inn í annað forrit. Þú getur stækkað (Zoom) síðuna sem þú ert að skoða og mælt fjarlægðir milli einhverja tveggja punkta á síðunni. Innbyggði litavafrinn býður uppá að velja liti frá fyrirfram ákveðnu litasetti og vista mest notuðu litinna í þínum eigin litavafra.

Frekari upplýsingar um ColorZilla
Firebug
Án nokkurs vafa skyldueign vefarans. Inniheldur öflug verkfæri til að vinna með vefsíður. Allt of mörg verkfæri til að telja upp hér.

Frekari upplýsingar um Firebug
Web Developer
Einfaldlega ómissandi viðbót fyrir alla vefara. Inniheldur allt of mörg verkfæri til að hægt sé telja upp hér. Kenni m.a. nemendum mínum í vefsmíðum að nota þetta verkfæri. Sjón er sögu ríkari.
![]()
Frekari upplýsingar um Web Developer
Ég skora á lesendur að senda inn ábendingar um Firefox viðbætur sem reynst hafa þeim vel.



Screengrab! : Sniðug viðbót sem ég nota oft til að taka mynd af hluta eða af heilli vefsíðu. Virkar mun betur en screenshot í Windows.
Íslensk orðabók : Hægri smella á form eins og þessi athugasemd er skrifuð í og velja íslensku orðabókina og þá les hún yfir textann sem þú skrifar.
Download statusbar: Það sem þú sækir í gegnum Firefox safnast saman fyrir ofan statusbarinn og þar geturu fylgst með því sem er að koma í staðin fyrir að hafa það allt í sér glugga.
PDF Download: Ein mikilvægasta viðbótin við Firefox en hún leyfir þér að velja hvað þú vilt gera þegar smellt er á tengla í PDF skjöl – áður en skjalið opnast. Oft næstum frýs vefskoðarinn á meðan PDF skjöl opnast.
FireFTP – afar hentugt fyrir fólk sem þarf að halda utan um flókna vefi (Joomla etc) þar sem aðlögunar er þörf. Bæði gott til flutnings en líka til að opna í 3. forriti og vista beint á vefinn.