Rome Reborn nefnist samstarfsverkefni bandarískra og ítalskra vísindamanna sem unnið hefur verið að undanfarin ár og felur í sér hvorki meira né minna en stafræna endurgerð hinnar stórfenglegu Rómarborgar til forna í þrívídd. Fyrsta útgáfan af líkaninu leit dagsins ljós þann 11. júlí 2007 og síðan stórlega endurbætt útgáfa þann 4. ágúst sl. Í dag svo var kynnt enn ein útfærsla á þrívíddarlíkaninu, en ólíkt þeim fyrri þá byggir hún á Google Earth hugbúnaðinum og gerir hverjum sem áhuga hefur kleift að upplifa borgina eilífu í þrívídd.
Til þess að vafra að vild um götur Rómar til forna þarf fyrst að virkja nýtt lag (e. layer) í Google Earth, þ.e. Ancient Rome 3D lagið sem er að finna í Gallery möppunni (undir Layers) vinstra meginn á skjánum. Því næst er tvísmellt á Ancient Rome 3D lagið til að fljúga rakleiðis til Rómar (eða “rome” slegið inn í leitargluggann) og þysja aðeins nær þangað til gular táknmyndir af byggingum og minnismerkjum borgarinnar birtast. Þá er tvísmellt á einhverja táknmyndina (skiptir ekki máli hver þar er). Birtist þá gluggi með frekari upplýsingum um viðkomandi byggingu eða stað og í vinstra hornunu niðri í þeim glugga eru þrír valkostir sem verður að smella á hvern af öðrum til að sækja landslag (terrain), kennileyti (landmarks) og byggingar (buildings). Athugið að það getur tekið nokkurn tíma að sækja þetta efni og einnig er mælt með nokkuð öflugri tölvu til að keyra líkanið innan Google Earth eftir að það hefur verið sótt. Til þess að auka hraðan á keyrslunni er ráð að slökkva á 3D buildings laginu sem er orkufrekt.

Líkanið af Róm inniheldur yfir 6700 staðsetningar, minnismerki og byggingar sem hægt er að skoða að frá öllum sjónarhornum. Líkanið eins og flýtur fyrir ofan sjálfa borgina í Google Earth og þarf dálitla æfingu til að rata þar um þessa draugaborg (hún er jú mannlaus). Hægt er að heimsækja 11 opinberar byggingar eins og Þingið (Roman Senate) og Colosseum hringleikahúsið og sjá hvernig þær litu út að innan á sínum tíma. Þar að auki inniheldur líkanið vandaðar upplýsingar á níu tungumálum (ekki íslensku því miður) um yfir 250 staðsetningar sem m.a. eru miðaðar við nemendur á grunnskólaaldri.
Ég er sannfærður um að Google Earth geti reynst ómetanlegt kennslutæki í höndum þeirra sem kunna með það að fara. Ég trúi því einnig að umrætt þrívíddarlíkan af Róm sem nú hefur verið gert aðgengilegt öllum almenningi endurgjaldslaust sýnir betur en margt annað þann mátt sem býr í upplýsingatækninni og þau einstöku tækifæri sem hún skapar í skólastarfi ef kennarar eru bara tilbúnir að taka hana í sína þjónustu.


