Það verður sífellt algengara að hugbúnaðarfyrirtæki stofni vefsamfélög líkt og AdaptedLearning í því skyni að taka púlsinn á viðskiptavinum og virkja krafta þeirra til að auka notagildi og virði hugbúnaðarins. Það er augljós hagur fyrirtækja ef mögulegt er að nýta krafta viðskiptavina og að sama skapi hagkvæmt fyrir Boardmaker notendur að eiga kost á því að læra hverjir af öðrum og hafa aðgang að safni verkefna til að nota í eigin kennslu. Sérstaklega á þetta við um skapandi verkfæri eins og Boardmaker sem er notuð til að hanna frá grunni eða aðlaga hvers kyns stuðnings og kennsluefni. Þess má einnig geta að kennarar og aðrir Boardmaker notendur hafa lengi vel nýtt sér aðrar leiðir til samskipta og efnismiðlunar, s.s. þennan vinsæla hóp (e. group) á Yahoogroups.
Ég þekki annað og vel þekkt framtak svipaðs eðlis sem er LearningGrids vefur Cricksoft, útgefanda Clicker, Clicker Paint, Cloze Pro, Jigworks og fleiri vinsælla kennsluforrita. Á LearningGrids geta notendur forritanna frá Cricksoft sótt sér verkefni eftir höfunda á vegum Cricksoft eða aðra notendur á svipaðan hátt og Boardmaker býður sínum viðskiptavinum nú að gera á AdaptedLearning.com.
Hvernig virkar AdaptedLearning?
Aðgangur að AdaptedLearning vefnum er öllum að endurgjaldslausu. Notendur stofna aðgang með því að skrá almennar upplýsingar um sig og velja notandanafn og lykilorð. Að því loknu geta þeir skráð sig inn á vefinn og valsað um að vild.

Við innskráningu opnast viðmót þar sem notendur geta leitað eftir efni, hlaðið inn eigin efni og átt samskipti við aðra Boardmaker notendur um heim allan. Hægt er að hefja umræður eða taka þátt í umræðum sem þegar eru í gangi á sérstökum umræðuvettvangi. Einnig má stofna til kynna við einstaka notendur (e. my friends) og jafnvel mynda afmarkaðri hópa (e. my groups) notenda, t.d. utan um ákveðin viðfangsefni, skólastig eða jafnvel landsvæði. Ég legg til að íslenskir Boardmaker notendur stofni eigin hóp þarna inni.
Leitað eftir efni á Adaptedlearning
Efnisleit á AdaptedLearning er einföld. Hægt er að slá inn leitarorð og takmarka leitina við skólastig (e. grade level), flokk (e. category) eða undirflokk (e. sub category). Sem dæmi um flokk má nefna samskipti (e. communication) og sem dæmi um undirflokk má nefna efni sem stuðlar að jákvæðri hegðun (e. positive behaviour support).
Þegar áhugavert efni hefur verið fundið er einfalt að kalla fram nánari lýsingu og sækja viðkomandi skrá með því að smella á lýsinguna í listanum og smella síðan á krækjuna Open file.

Nánari lýsing inniheldur m.a. upplýsingar um höfund, hvaða útgáfu af Boardmaker þarf til að nota efnið og hvenær það var sett á vefinn. Þá er hægt að meta efni og skrá við það athugasemdir. Auk þess að sækja skrár yfir á eigin tölvu geta notendur viðað að sér efni í myfiles, sem er netlægt skráarsafn viðkomandi notanda á AdaptedLearning.

Þegar þetta er skrifað eru tæplega 600 Boardmaker skrár hýstar á AdaptedLearning og má fastlega búast við því að sú tala hækki verulega eftir því sem Boardmaker notendur uppgötva vefinn. Ég hvet Boardmaker notendur íslenska til að kynna sér þennan nýja kost og sendið endilega inn eigið efni því sælla er að gefa en þiggja.



Fín síða, er búin að ná mér í nokkur “borð” til að þýða og staðfæra. Ég er ekki nógu dugleg að nota boardmaker, hangi svolítið í word og kópera bara myndir, en stefni á að auka notkunina
takk
kveðja
Elín