Vinalegir vefir með Google Friend Connect

Skrifað 08. December 2008
Flokkur: Almennt
Ein athugasemd frá lesendum

Google hefur loksins opnað fyrir aðgang almennings að Friend Connect, sérstakri vefþjónustu sem gerir öllum sem áhuga hafa kleift að breyta hefðbundnum vefjum í tengslanet með öllu tilheyrandi án mikillar fyrirhafnar.

Friend Connect er sniðugur krókur á móti því bragði sem vinsæl vefsamfélög á við Facebook og Myspace hafa undanfarið beitt með góðum árangri, nefnilega vinavæðingu vefsins. Google á reyndar til í fórum sínum eitt stykki vefsamfélag, nefnilega Orkut, sem nýtur töluverðra vinsælda í suður ameríku en því miður fyrir Google hvergi nema þar.

Nú efast ég ekki um að það hefur hvarflað að stjórnendum Google að stytta sér leið og kaupa einfaldlega Facebook með húð og hári. Sögusagnir um það voru daglegt brauð á síðasta ári. Á endanum var hins vegar ráðist í að skapa netverjum öllum tækifæri til að byggja eigin tengslanet á eigin vefjum í stað þess að smíða enn eitt lokað netsamfélag og keppa við Facebook og Myspace á þeirra heimavelli. Kannski dreymir Google um að gera vefinn að einu stóru samofnu tengslaneti þar sem þeir hafa bæði tögl og haldir.

Google Friend Connect byggir á grunneiningu og stökum einingum sem hægt er að auka við hana að vild. Þegar grunnþjónustunni hefur verið komið fyrir (tvær litlar skrár afritaðar yfir á vefþjóninn) geta notendur skráð sig inn á viðkomandi vef og notað til þess Google, Yahoo, Aim eða OpinID auðkenni. Samskipti notenda á milli og önnur félagsleg virkni vefsins fer síðan fram með þeim einingum sem settar eru upp samhliða grunneiningunni. Þegar þetta er skrifað er úrval valeininga frekar fátæklegt en Google hefur opnað forritaskilin (API) að Friend Connect þannig að hver sem vill getur þróað eigin einingar sem tengjast Friend Connect á sama hátt og hægt er að skrifa einingar sem tengjast Facebook eða Myspace vefjunum vinsælu. 

Í hægri dálknum á þessari síðu má sjá vinalista þessa vefs. Ég hef í hyggju að koma þessari einingu á forsíðuna en hef enn ekki náð að gera það á nógu smekklegan hátt. Hægt er að skrá sig á listann og hvet ég lesendur eindregið til að gera það. Í náinni framtíð mun ég bæta fleiri einingum við vefinn og verður fróðlegt að sjá hvaða áhrif það hefur á gesti og gangandi.

Ég er óneitanlega dálítið spenntur fyrir möguleikum Friend Connect í námi og kennslu. Netlæg tengslanet hverskonar eiga örugglega framtíðina fyrir sér og get ég vel séð fyrir mér að stofnanir, skólar, bekkir eða afmarkaðri hópar gætu stofnað vefi í kringum nám sitt, vinnu eða áhugamál.


Tengt efni

1 athugasemd við “Vinalegir vefir með Google Friend Connect”

  1. Carlos skrifar:

    Talandi um tengslanet, mér skilst á dagskrárgerðarmanni á BBC sem tók í Harward MBA, að það var ekki topp kúrsar heldur endalausir samhristingar sem voru á dagskrá þar á bæ. Myndun tengslanets og menningar eru aðalsmerki þess skóla að hans sögn, ekki að til verði fyrsta flokks viðskiptajöfrar.

Skráðu athugasemd