Close

Svona gerum við

Námsefni

Tíu vönduð WordPress sniðmát

WordPress sniðmát má finna víðsvegar um vefinn, en gæði þeirra eru eins misjöfn og þau eru mörg. Hér eru tíu sniðmát sem ég gef mína hæstu einkunn og ekki spillir fyrir að frjálst er að nota þau endurgjaldslaust.

Um leið og ég fagna nýrri og glæsilegri WordPress útgáfu bendi ég áhugasömum á tíu sérlega vönduð sniðmát sem að mínu mati bera af flestum þeim WordPress sniðmátum sem hægt er að sækja ókeypis á Netið. Athugið að hægt er að smella á smámyndirnar til að kalla fram stærri mynd en til að sjá virkni viðkomandi sniðmáts er smellt á sýnishornakrækjuna.

Typebased sniðmátið

Typebased

WP-Premium

Stílhreint og flott sniðmát í boði Woo Themes. Hentar mjög vel fyrir einstaklinga sem vilja koma sér upp bloggi.       

Hreint og vandað stílmát sem hentar ágætlega fyrir fréttaflutning.       

Snapshot

Original Premium News

Ég mæli með Snapshot sniðmátinu fyrir þá sem hafa áhuga á því að setja upp ljósmyndablogg.       

Enn eitt sniðmátið í boði Woo Themes. Sérstaklega hannað fyrir fréttablogg eins og nafnið gefur til kynna.       

Album

Church

Annað frábært sniðmát fyrir ljósmyndara sem vilja koma verkum sínum á framfæri.       

Sniðmát sem er frekar fréttavefjalegt í útliti en gæti allt eins hentað fyrir kvikmynda- eða tónlistarvefi.       

Infinity

Fun

Einstakt sniðmát í boði Smashing Magazine, litríkt og leikandi. Örugglega hægt að finna einhver spennandi not fyrir það.       

Krakkalegt og skemmtilegt sniðmát sem örugglega má hafa gagn af t.d. í skólastarfi.       

Scruffy sniðmátið

Scruffy

Agregado

Flott sniðmát sem hentar vel fyrir einstaklingsblogg. Dálítið sérstakur stíll.   

Annað litríkt sniðmát í boði Smashing Magazine. Hentar vel fyrir einstaklingsvefi. 



Tengt efni

Skráðu athugasemd