Close

Svona gerum við

Námsefni

TiltViewer myndaskoðarinn

21 Dec Uncategorized | Athugasemdir
Tiltviewer er skemmtilegur lítill, netlægur hugbúnaður til að birta myndasöfn á þrívíðan hátt á vef. Ég prufaði að setja hann upp mér til gamans og gekk það með öllu vandkvæðalaust. Það má svo sem velta fyrir sér hagnýtingu TiltViewer og sambærilegs hugbúnaðar, en ég efast ekki um að hafa má af honum einhver góð not.

TiltViewer

Almennar upplýsingar

TiltViewer keyrir á flash og er til í tveimur útgáfum, Tiltviewer sem er ókeypis (ekki opinn hugbúnaður) og TiltViewer-Pro (http://www.airtightinteractive.com/projects/tiltviewer/pro/) sem kostar $45 og inniheldur t.a.m. fleiri stillingarkosti. Það sem hér er skrifað á við um ókeypis útgáfuna fyrst og fremst.

Uppsetning

Til þess að setja upp TiltViewer þarf einungis að færa skráarsafnið sem inniheldur hugbúnaðinn og tengdar skrár yfir á vefþjón. Til þess notaði ég FileZilla sem ég mæli eindregið með til slíkra verka. Að því loknu þarf að breyta nokkrum stillingum í index.html skránni (sjá mynd), í mínu tilfelli til þess að láta TiltViewer vísa á myndir á Flicker í stað þess að veiða þær úr möppu á vefþjóninum. Hér má sjá hvernig til tókst.

tiltviewer-uppsetning

Ágætar leiðbeiningar um uppsetningu og stillingar má finna á vef útgefanda.

Niðurstaða

Framsetning myndræns efnis, s.s. ljósmynda eða teikninga, með forritum á við Tiltviewer getur vissulega lífgað upp á hvaða vef sem er. Ég mæli þó ekki með því að þessi leið sé farin þegar um stór myndasöfn er að ræða. Áhugasamir um þrívíða framsetningu ljósmynda ættu einnig að kynna sér Cooliris (hét áður Piclens). Svo má eyða tímanum í margt verra en skoða aðrar lausnir frá Airtight Interactive, útgefanda TiltViewer.


Tengt efni

  • Ekkert fannst

Skráðu athugasemd