- Picasa nú á íslensku
Hér fjalla ég um myndaumsýsluhugbúnaðinn Picasa sem Google gefur út og þýtt á 38 tungumál, þar með talið íslensku. Picasa er má sækja endurgjaldslaust á vefinn picasa.com.
Síðan þetta var skrifað…
hefur Picasa 3.0 litið dagsins ljós.
- Zac Browser er einstakur vefskoðari fyrir einhverfa
John LeSieur er maður sem lætur verkin tala. Árið 2002 eignaðist dóttir hans dreng sem greindur var einhverfur við þriggja ára aldur. Nú hagar þannig til að LeSieur er einn af höfundum KidzCD netvafrans barnvæna og þegar hann komst að því að Zackary, en svon nefnist drengurinn, naut þess að vafra um netið með aðstoð KidzCD ákvað hann að skapa sérhæfðan vafra fyrir dótturson sinn. Vafrann nefndi hann ZAC Browser og hefur nú gert aðgengileganöllum sem á þurfa að halda endurgjaldslaust.
- Æfðu þig í fingrasetningu og vélritun á Netinu
Touch Typing nefnist einfaldur, netbundinn hugbúnaður (flash) sem ég nota gjarnan með nemendum mínum, þeim sem þurfa á að halda að æfa sig í fingrasetningu og vélritun. Eins ágætt og forritið er þá hefur það einn stóran galla, það vantar tilfinnanlega íslenskt lyklaborð. Í von um að bæta úr þessu skrifaði ég höfundinum Ezra Molkho sem nú hefur brugðist við beiðni minni og gefið út séríslenska útgáfu.
- Einfaldar hreyfimyndir með Pivot
Pivot er stórskemmtilegur og skapandi hugbúnaður sem gerir notendum kleift að setja saman einfaldar fígúrur og stutt myndskeið þar sem hægt er að láta fígúrurnar hreyfast að vild. Pivot er einfalt í notkun og hentar börnum á leikskólaaldri jafnt sem nemendum á grunnskólastigi.
Síðan þetta var skrifað…
Hefur Paint.net verið uppfært nokkrum sinnum. Nýjasta útgáfan er 3.3.6 og gert er ráð fyrir að Paint.net 4.0 muni koma út um mitt næsta ár.
- Mannslíkaminn í þrívídd með aðstoð Visible Body
Visible Body er glænýr vefur sem hefur að geyma ítarlegustu sjóngervingu af mannslíkamanum sem til er. Vefurinn er stórkostlegt verkfæri fyrir kennara á öllum skólastigum og auðvitað alla þá sem hafa áhuga á líffræði mannsins.
- Artrage 2 – einstaklega vel heppnað teikniforrit
Teikniforritið Artrage er eitt af þeim forritum sem ég hef gjarnan bent kennurum á að hægt er að sækja án endurgjalds á Netið, enda um að ræða vandaðan hugbúnað sem hentar ágætlega í skólastarfi. Nú hefur útgefandi Artrage, hugbúnaðarfyrirtækið Ambient design, kynnt útgáfu 2.0 af þessu skemmtilega forriti og inniheldur hún margvíslegar nýjungar og endurbætur. Artrage er til fyrir bæði Windows og Mac OSX stýrikerfið. Ég mæli sérstaklega með þessum frábæra hugbúnaði fyrir alla þá sem eru svo heppnir að eiga teikniborð.
Síðan þetta var skrifað…
hefur Artrage 2.5 litið dagsins ljós.
- Nú geta allir teiknað í þrívídd
Það er ekki á hverjum degi sem fólki gefst tækifæri á því að eignast úrvals hugbúnað til þrívíddarteikninga endurgjaldslaust og það á fullkomlega löglegan hátt. Svo er hins vegar reyndin með Google Sketchup, þrívíddarteikniforritið vinsæla sem nú er hægt að sækja í ókeypis útgáfu. Síðan þetta var skrifað…
Hefur Goggle gefið út Sketchup 7 sem inniheldur fjölmargar endurbætur og nýjungar.
- Nýjungar í Boardmaker 6
Fyrir nokkru kynnti Mayer Johnson nýja útgáfu af Boardmaker hugbúnaðinum í Bandaríkjunum, Boardmaker Plus 6.0. Forritið verður selt í Skólavörubúðinni og er væntanlegt þangað í náinni framtíð en í millitíðinni er hægt að sækja 30 daga prufuútgáfu (einungis til í Windows útgáfu) á vef framleiðanda og kynna sér nýjungarnar. Ég gerði einmitt það og komst að eftirfarandi.
- Stafræn ljósmyndavinnsla með Paint.net
Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar hefur sett saman handbók um notkun opna teikniforritsins Paint.net. Líkt og sjálfur Paint.net hugbúnaðurinn þá er handbókin er öllum opin og aðgengileg án endurgjalds. Ég hika ekki við að mæla með þessum vandaða hugbúnaði.
- Nýtt námsefni í upplýsingatækni væntanlegt frá Námsgagnastofnun
Á kynningardegi Námsgagnastofnunar sem haldinn verður í Árbæjarskóla miðvikudaginn 20. ágúst nk. mun ég opinbera nýja íslenska handbók í Sketchup teiknihugbúnaðinum magnaða frá Google. Handbókin verður aðgengileg án endurgjalds á vef Námsgagnastofnunar á pdf sniði.
Síðan þetta var skrifað…
hefur námsefnið verið gefið út á vef Námsgagnastofnunar.


