Einfaldir rofaleikir
Ég hef alls ekki gert nógu mikið af því að fjalla um hentugan hugbúnað fyrir einstaklinga sem stýra tölvunni með aðstoð rofa. Hér verður lítillega bætt úr því með því að benda á nokkra sniðuga netlæga smáleiki.
Upplýsingatækni í námi og kennslu
Ég hef alls ekki gert nógu mikið af því að fjalla um hentugan hugbúnað fyrir einstaklinga sem stýra tölvunni með aðstoð rofa. Hér verður lítillega bætt úr því með því að benda á nokkra sniðuga netlæga smáleiki.
Sprixi er sérhæfð leitarvél, hönnuð er til þess að finna ljósmyndir og teikningar með opnum höfundarleyfum. Sprixi sækir niðurstöður í Flickr, OpenClipart og ört vaxandi eigið myndasafn. Sprixi státar af afskaplega notendavænu viðmóti ásamt því að vera þeim eiginleikum gædd að eflast við notkun.
Nýlega voru kunngerð úrslitin í Edublog Awards verðlaunasamkeppninni, en þetta er sjötta árið í rauð sem keppnin er haldin. Keppt er í alls 19 flokkum og endurspeglar fjöldi tilnefninga þá gríðarlegu grósku sem er í náms og menntatengdu bloggi. Ég fylgist gjarnan með þessum verðlaunum og rekst undantekningarlaust á einn eða fleiri vefi sem vert [...]
Tryggvi Thayer fjallar um tillögur Viðskiptaráðs um frekari niðurskurð á opinberum gjöldum í áhugaverðum pistli á vefnum sínum Upplýsandi tækni.
Jamendo tónlistarvefurinn er sneysafullur af allrahanda tónlist sem öll er gefin út með opnum höfundarleyfum. Þangað er kjörið að sækja tónlist og nýta í skólastarfi, s.s. við gerð myndskeiða, kynninga eða margmiðlunarefnis svo fátt eitt sé nefnt. Jamendo er einnig vettvangur fyrir tónlistarfólk að koma sér og verkum sínum á framfæri.
Hugmyndaráðuneytið stendur fyrir fundi um menntamál að Grandagarði 2 miðvikudaginn 16. desember nk. kl. 8:00 – 10:00.
http://172.22.2.184:88/hugurax/images/stories/TOK/tok-vefhjalp-hnappur.gifWednesday, December 16
Fundur um menntamál
Type: Meetings – Club/Group Meeting
Where: Hugmyndaráðuneytið, Grandagarði 2
When: Wednesday, December 16 from 8:00 pm to 10:00 pm
Your RSVP: Awaiting Reply (edit)
RSVP
View Guest List
Remove from My Events
Ég las nýlega greinina 5 K-12 Technology Trends for 2010 í vefútgáfu The Journal (Transforming Education Through Technology) þar sem leitað var eftir viðbrögðum sérfræðinga hvað varðar tækniþróun í grunnskólum á næsta ári. Það væri fróðlegt að fá að h eyra hvað íslenskir kennarar hafa að segja um niðurstöðurnar.
Hér eru vísanir á fleiri ókeypis en vönduð netlæg smáforrit í boði Triptico. Þau fara sérlega vel á gagnvirkri töflu í kennslustofu en henta auk þess ágætlega til brúks í venjulegum skjám einstaklingstölva.
Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009? Hádegisverðarfundur á Grand Hótel miðvikudaginn 16. desember kl. 12 – 14. Skráðu þig á viðburðinn hér.
Google og UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, hafa sameinast um að gera aðgengilegt á Netinu myndefni af völdum stöðum af heimsminjaskrá UNESCO á Google Earth og Google maps kortavefnum.
Úthlutað hefur verið úr þróunarsjóði námsgagna. Hér má finna yfirlit yfir styrkþega.
Stórsýningin Netið 2010 verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind dagana 12-14. mars. Markmið sýningarinnar er að kynna nýjungar, þjónustu og möguleika sem eru í boði á íslenskum netmarkaði.
Forsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á vefjum hátt í þrjú hundruð stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf framkvæmdi úttektina og er þetta í þriðja sinn sem slík úttekt er gerð.
Aðalfundur RANNUM verður haldinn föstudaginn 12.mars kl. 16-17 í fundarherbergi á 5.hæð í Bolholti 6.