Söngvasmiðurinn
Songsmith er forvitnilegur hugbúnaður ættaður úr tilraunastofu Microsoft og gerir, að því að fullyrt er, öllum sem áhuga hafa kleift að skapa sína eigin tónlist á ótrúlega aðgengilegan hátt.
Svona virkar Songsmith
- Veldu tónlistarstíl. Hægt er að velja úr 30 ólíkum tegundum tónlistar, s.s. rokk, hip-hop, diskó eða salsa. Fleiri tegundir má kaupa á Netinu. Þegar tónlistartegundin hefur verið valin er hægt að breyta hraðanum/taktinum þannig að betur hæfi.
- Syngdu við undirspil eða trommutakt Songsmith í anda þeirrar tónlistartegundar sem þú valdir. Hér þarf að hafa hljóðnema við hendina.
- Songsmith fullvinnur lagið með því að búa til undirspil í takt við þinn söng. Gæti varla verið einfaldara.
Songsmith gerir notendum einnig kleift að vinna áfram með þá tónlist sem skapað er í forritinu og t.a.m. er hægt að breyta um tóntegund og hljóðfæri. Tilbúin lög er hægt að vista sem hljóðskrár (WMA, WAV eða MIDI) eða færa beint yfir í Movie Maker og vinna þar áfram.
Hægt er að sækja 30 daga prufuútgáfu af Songsmith á Microsoft Research vefnum. Forritið krefst Microsoft Windows XP (með að minnsta kosti “servicepack 2″ uppsettum) eða Vista stýrkikerfi með að lágmarki 1GB í minni og 1GHz vinnsluhraða (processor). Þegar þetta er skrifað er einungis hægt að kaupa forritið í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu mun kosta rétt tæplega 30 dollara.
Ég viðurkenni fúslega að ég er dálítið hrifinn af þessu forriti og það væri virkilega gaman að heyra frá kennurum sem hafa sótt það og reynt að nota í skólastarfi. Ég get vel ímyndað mér að það henti ágætlega til tónlistarsköpunar í leikskóla og fyrstu bekkjum grunnskólans.
p.s.
Meðfylgjandi myndskeið frá Microsoft þykir víst með því hallærislegasta sem komið hefur úr herbúðum stórfyrirtækisins og af mörgu er að taka. Gott ef ég er ekki nokkuð sammála.



January 10th, 2009 at 6:01
Þú nefndir báða gallana við forritið – krefst Win og $30. Tókstu eftir að tölva stelpunnar í upphafi skotsins var MacBook Pro?
January 10th, 2009 at 7:41
Ég hef persónulega ekkert á móti því að borga fyrir góðan hugbúnað og geri það reglulega þó vissulega eigi opnar lausnir hug minn allan. Tók ekki eftir því að stelpan væri með MacBook Pro – frábær punktur