Það helsta úr heimi stafrænna hugarkorta
Chuck Frey sem meðal annarra verka heldur úti netbundinni hugvekju um hugarkort telur ýmislegt benda til þess að árið 2009 verði ár hugarkortsins. Sjálfur hef ég orðið var við stóraukna notkun á hugarkortum í skólastarfi og tel það af hinu góða. Hér á eftir fara fréttir af því helsta úr heimi stafrænna hugarkorta um þessar mundir.
MindManager 8
Mindjet hefur enn á ný uppfært MindManager hugbúnaðinn, en áttunda útgáfan leit dagsins ljós á seinni helmingi síðasta árs. Meðal helstu nýjunga er sérstakur Mindjet spilari sem gerir notendum kleift að varpa hugarkortum á milli vefja líkt og tíðkast með myndskeið. Þess má geta að þessi eiginleiki hefur lengi verið til staðar í netbundnum hugarkortasmiðum s.s. Mindmeister.
Það er óhætt að segja að með nýju útgáfunni festir MindManager sig enn betur í sessi sem leiðandi hugbúnaður á vettvangi hugarkorta. Ég er samt ekki alveg sannfærður um nauðsyn þess að skipta úr útgáfu 7 yfir í 8. Í það minnsta ekki hvað skólaumhverfið varðar því nýjungarnar eru margar hverjar þess eðlis að þær skipta minna máli í námi og kennslu en viðskiptalífinu. Það er samt alltaf umdeilanlegt auðvitað.
Frekari upplýsingar um MindManager og tengdar lausnir má finna á vef Verkefnalausna.
XMind er orðinn opinn hugbúnaður, eða hvað?
XMind er nokkuð hefðbundinn hugbúnaður til að smíða og sýsla með hugarkort og svipar um margt til MindManager í útliti jafnt sem notkun. XMind hefur uppá að bjóða allar helstu aðgerðir við stafræna hugarkortagerð og þar að auki miðlæga hýsingu á hugarkortum notenda. XMind er til fyrir Windows, Macintosh og Linux stýrikerfi og einnig er til staðar sérstök útgáfa af hugbúnaðinum til að setja upp á smádrif eða svokallaða USB lykla.
Nýlega bárust þær fréttir að útgefendur XMind hefðu breytt viðskiptalíkani sínu á þann veg að frá og með útgáfu 3.x yrðu tvær aðskildar útgáfur af hugbúnaðinum í boði, önnur opin (open source), hin seld viðskiptavinum í áskrift ($49 á ári). Þóttu mér þetta góðar fréttir eins og rétt má geta. Þegar ég hins vegar gaf mér tíma til að skoða hugbúnaðinn nánar kom fljótlega í ljós að í opnu útgáfuna vantaði eiginleika sem eru að mínu viti ómissandi í skólastarfi. Það er t.d. ekki hægt að flytja kort úr XMind yfir a PDF snið eða algengan notendahugbúnað eins og Word eða Powerpoint (eða Mindmanager). Þar að auki er ekki hægt að nýta sérstakan kynningarham (presentation) sem einungis áskriftarútgáfan inniheldur (svipað og Mindmanager og hentar vel í kennslu) eða tengja hljóðupptökur (audio notes) við einstaka hluta hugarkorta. Á vef XMind má finna ágætan samanburð á eiginleikum hinna ólíku útgáfa.
Ég myndi hiklaust mæla með XMind í skólastarfi ef ekki væri fyrir ofangreindar takmarkanir og þá staðreynd að þarna er verið að nota opið hugbúnaðarleyfi til að safna áskrifendum að séreignahugbúnaði. Kennarar sem vilja nota hugarkort til að setja fram viðfangsefni í tímum (t.d. með gagnvikri töflu) eða nota á hvern þann hátt sem ekki krefst þess að kortin séu vistuð á annað snið (það er hægt að vista þau sem mynd, hreinan texta eða á XMind snið) ættu að kynna sér XMind.
Mindmeister verður öflugri með hverri útgáfu
Ég áttaði mig fyrst á kostum þess að vinna hugarkort á Netinu þegar ég kynntist netlæga hugbúnaðinum Mindmeister. Það hefur oft komið sér vel að hafa hugarkortin mín innan seilingar á Netinu, svo ég tali nú ekki um möguleikann á rauntímasamvinnu tveggja eða fleiri aðila. Þess má geta að MindManager notendur verða að fjárfesta í sérstökum hugbúnaði til að fá svipaða virkni. Netlægum hugarkortum má einnig varpa á einfaldan hátt á milli vefja líkt og nú er loksins hægt í Mindmanager 8.
Það skal tekið fram að Mindmeister jafnast ekki á við MindManager að eiginleikum og virkni, en það má líka spyrja sig af því hversu hlaðinn hugarkortahugbúnaður þarf að vera. Hversu mörg prósent af eiginleikum Mindmanager ætli hinn venjulegi notandi þurfi í raun á að halda? Stundum er minna nefnilega meira.
Inspiration kynnir Webspiration
Inspiration Software, framleiðandi samnefnds hugbúnaður til hugarkortasmíða og hins vinsæla Kidspiration boðar nú opnar betaprófanir á nýjum veflægum hugbúnaði til hugarkortagerða, nefnilega Webspiration.
Ég skráði mig fyrir aðgangi að Webspiration og ef ég á að segja eins og er þá finnst mér afurðin ekki tilkomumikil svona við fyrstu sýn. Webspiration liggur einhverstaðar á mörkum vektor teikniforrits og hugarkortasmiðs og er viðmótið frekar viðvaðningslegt og óspennandi að mínu mati. Kannski er það bara grafíkin sem er notuð sem pirrar mig. Ég er mun spenntari fyrir Gliffy sem getur að því mér sýnist gert flesta það sem Webspiration er ætlað að áorka og virðist þar að auki gera það mun betur.
Text2Mindmap
Hér er svo frumleg og bráðsniðug netlæga lausn sem ég held að eigi erindi til allra hugarkortaáhugamanna, en með henni er hægt að breyta einföldum listum í gagnvirk, netlæg hugarkort. Ég segi ekki meira enda er sjón að sjálfsögðu sögu ríkari.






January 20th, 2009 at 9:42
Ég hef verið að nota FreeMind sem er ókeypis forrit, sjá nánar á http://freemind.sourceforge.net/wiki/index.php/Main_Page Get alveg mælt með því. Svo má benda á að allir nemendur og kennarar við HÍ eiga þess kost að sækja sér MindManager sér að kostnaðarlausu. Það er gert með því að vera innskráður í Ugluna og velja þar „Tölvuþjónusta“ (minnir mig).
January 20th, 2009 at 8:39
Það er rétt, Mindmanager er ókeypis fyrir HÍ borgara. Fyrir þau sem þurfa að horfa í aurana er hægt að mæla með Freemind – þó ekki vegna viðmótsins – Mindmanager er miklu betri hvað það varðar (eða var það).
Mindmeister er að sækja í sig veðrið og er verulega þénug þjónusta, flytja má kort úr bæði Mindman og Freemind í og úr því. Ekki spillir að hægt er að vefa kortin í heimasíður, að vísu með iframe taginu. Það gerir heimasíðuna viðkvæmari til misnotkunar, ef marka má vefleitina (iframe security)
February 4th, 2009 at 5:54
fólk er farið að nota hugarkort eins og glærur. þau henta vel til þess. henta líka vel fyrir hópa sem eru að vinna saman t.d. með eitthvað á skjávarpa. sniðugra en ritvinnsluskjöl
en hvað skyldi samningurinn um mindmanager kosta háskólann. hvernig er hægt að réttlæta þetta ef það er dýrt á tímum eins og núna þegar auðvelt er að fá sambærileg verkfæri ókeypis.