Fljótlegar fallbeygingar í vefskoðara

Skrifað 01. February 2009
2 Athugasemdir frá lesendum


Beygingarlýsing íslensks nútímamáls er yfirgripsmikið safn beygingardæma sem finna má á vef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þar er hægt að slá inn orðum og einstökum beygingarmyndum orða, en safnið hefur að geyma alls 269.691 beygingardæmi.


Hér verður sýnt hvernig hægt er að tengja beygingarsafnið við vefskoðara og leita eftir beygingarmyndum orða með því einu að slá inn sérstakt auðkenniorð og orðið sem leitað er eftir. Að sjálfsögðu má nota sömu aðferð til að tengja aðra vefi við vefskoðarann.

Fallbeygingar í Firefox

Opnaðu vefsíðuna þar sem leitað er eftir beygingu orða á vef Árnastofnunar og smelltu með hægri músarhnapp inn í leitarreitinn.

Veldu “Add a Keyword for this Search…” Af valseðlinum sem birtist. 

beygingar-firefox1

Nú birtist glugginn Add Bookmark. Í Name reitinn er slegið inn nafn á leitinni. Það má vera nafn að eigin vali en að sjálfsögðu eðlilegt að það gefi til kynna viðfangsefnið. Í Keyword er slegið inn auðkenniorðið sem notað er þegar leita á eftir beygingarmynd. Ég ætla að setja textann “beygj” í þennan reit (ath. ekki nota gæsalappir). Smellt er á Add hnappinn ti að staðfesta aðgerðina

beygingar-firefox2

Þá er bara eftir að prufa

Til að leita eftir beygingu orðs er auðkenniorð leitarreitsins orð orðið sem leita skal eftir slegið inn í vefskoðarann og síðan stutt á Enter lykilinn á lyklaborðinu. Athugaðu að slá þennan texta á sama stað og þú slærð inn vefslóðir.

beygja-firefox3

Ef allt gengur að óskum opnast vefsíða með niðurstöðum leitarinnar. Í þessu tilfelli er um tvo valkosti að ræða, þ.e. annað hvort er orðið kvenkynsnafnorð eða sagnorð. Smellt er á þann valkost sem við á.

beygja-firefox4

Ég valdi að skoða beygingar á kvenkynsnafnorðinu “tölva” og birtust þá eftirfarandi niðurstöður. Athugaðu að haka við “Leita að beygingarmynd” þegar við á.

beygja-firefox5

Sömu aðferð má að sjálfsögðu nota til að tengja aðrar leitir beint við vefskoðarann.


Tengt efni

2 athugasemdir við “Fljótlegar fallbeygingar í vefskoðara”

  1. Bjarndís skrifar:

    Er eingöngu hægt að virkja fallbeygingarnar í FireFox vefskoðara?

  2. sfjalar skrifar:

    Ég veit að þetta er einnig hægt í Chrome og Opera. Þekki Safari lítið og er að skoða möguleikana í mismunandi útgáfum af Internet Explorer.

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni