Ungfrú Riley
Mrs. Riley er nafnið á nýjum, netlægum töflusmið þar sem notendur geta sett saman töflur með myndum og texta ekki ósvipað og gert er með Boardmaker forritinu velþekkta. Mrs. Riley er enn á þróunarstigi og varla samanburðarhæft við Boardmaker enn sem komið er. Byrjunin lofar hinsvegar góðu.
Töflurnar sem smíða má með aðstoð ungfrú Riley eru einfaldar og byggja á nokkrum fyrirfram gefnum sniðmátum sem notendur geta valið úr. Það er því ekki hægt að draga upp töflur að vild eins og óskandi væri. Þetta er að mínu mati einn stærsti gallinn við forritið eins og það lítur út í dag og takmarkar til muna notagildi þess. Hvað myndir í töflurnar varðar þá er hægt að velja úr dágóðu safni ljósmynda og teikninga og setja eigin texta við þær. Einfalt er að bæta eigin myndum við safnið og er það vel.
Notendaviðmótið í Mrs. Riley er mjög einfalt og það tekur ekki nema nokkrar mínútur að læra að setja saman töflur með aðstoð þess. Stærsti kostur hugbúnaðarins og mestu tækifærin felast hins vegar í því sem kalla má félagslegum eiginleikum netbundins hugbúnaðar. Nú þegar er hægt að vista myndatöflur í ungfrú Riley á þann hátt að þær eru aðgengilegar öðrum notendum kemur öllum vel. Aðrir möguleikar eru enn ónýttir, s.s. sameiginleg myndasöfn, vinnuhópar og samfélög notenda. Ég minni á færslu mína um Adaptedlearning.com vef Mayer Johnson (framleiðanda Boardmaker) í þessu sambandi.
Ég er verð að viðurkenna að mér hugnast ágætlega sá kostur að hafa einfaldan töflusmið innan seilingar á Netinu. Í minni kennslu þarf ég ekki á slíku verkfæri að halda daglega en það kemur reglulega fyrir að ég þurfi að grípa til Boardmaker eða annars hugbúnaðar til að setja saman töflur bæði einfaldar og flóknar. Boardmaker er hins vegar dýrkeyptur hugbúnaður og margir þeir sem nýta hann munu aldrei þurfa á öllum eiginleikum hans að halda. Aðgangur að ódýru og auðlærðu verkfæri á við Mrs. Riley er því óneitanlega spennandi möguleiki. Að sjálfsögðu veit ég ekki á þessari stundu hvað Mrs. Riley kemur til með að kosta en líklegast verður um að ræða einskonar áskriftarfyrirkomulag. Ég vona bara að verðinu verði stillt í hóf.
Ég held að framleiðendur Boardmaker geti sofið áhyggjulaust, allavega næstu mánuði enda er Mrs. Riley ekki skæður keppinautur þeirra enn sem komið er. Ég myndi samt hafa vakandi auga með þessari dömu ef ég væri í þeirra sporum. Hlutirnir eiga það nefnilega til að breytast hratt á þessum vettvangi.
Áhugasamir geta tekið þátt í opnum betaprófunum á Mrs. Riley. Það er um að gera að prófa.



