Close

Svona gerum við

Námsefni

Sýnileg orð

22 Feb enska | Athugasemdir
Visuwords vefurinn er netlæg orða- og samheitaorðabók á ensku. Myndræn framsetning orða gerir það að verkum að Visuwords er eins og sniðin að kennslu. Ég nýti Visuwords enda óspart með nemendum mínum og mæli sérstaklega með vefnum fyrir alla kennara sem hafa aðgang að gagnvirkum töflum.

Visuwords er í raun myndrænt viðmót við WordNet gagnagrunninn sem er öllum opin (open source). WordNet er byggður af rannsakendum og nemendum við Princeton háskólann og er lýsandi dæmi um þá skemmtielgu hluti sem geta gerst þegar gögn eru aðgengileg fólki sem hefur áhuga og getu til að vinna með þau á skapandi hátt. Í þessu sambandi verð ég einu sinni sem ofart að benda á Gapminder hugbúnaðinn og fyrirlestur Hans Rosling á TED ráðstefnunni um árið. Einn af betri fyrirlestrum á TED og er þá ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.

visuwords-skjamynd

Þegar leitarorð er slegið inn í Visuwords spretta niðurstöðurnar fram eins og gorkúlur á ofurhraða og til verður margslungið orðakort eða tengslanet orða eða sem hægt er að rekja sig eftir. Hægt er að toga og teygja einstaka hluti orðakortsins og stækka og minnka að vild. Þegar músarbendillinn er staðsettur við einstakt orð birtist skilgreiningin á því í litlum ramma til hliðar við bendilinn.

Ég nota Visuwords iðlega á þann hátt með nemendum mínum í enskukennslu að við veljum áhugaverð orð og skoðum það ítarlega í sameiningu. Oftar en ekki í tengslum við lestur eða hlustun á texta dagsins af Breaking News English vefnum sem ég held mikið uppá. Einn af fjölmörgum kostum Visuwords er að tengingar á milli orða eru auðkenndar með mismunandi litum og lögun sem segir til um hvers eðlis sambandið er á milli orðanna. Þannig er t.a.m. augljóst hvort um er að ræða samheiti eða andheiti.

Visuwords er opinn hugbúnaður og kóðinn því aðgenglegur öllum sem áhuga hafa á því að nýta sér hann. Ef einhver hefur tíma og tækifæri væri spennandi að kanna möguleikan á því að tengja þetta viðmót við íslenskt orðasafn. Að vísu veit ég ekki til þess að neitt slíkt sé til opið og aðgengilegt á Netinu og væntanlega þyrfti gagnaskipanin að vera sambærileg við Wordnet. En það má alltaf láta sig dreyma.
  

Aðrar áhugaverðar, netlægar orðabækur fyrir enska tungu



Tengt efni

Skráðu athugasemd