Wiktionary + Flickr = Shahi

Skrifað 20. March 2009
Flokkur: enska
Engar athugasemdir frá lesendum

Shahi nefnist nýtilkomin myndræn orðabók sem sækir orðaskýringar úr Wiktionary orðabókinni og Wordnet orðasafninu og birtir samhliða ljósmyndum frá Flickr þjónustunni eða myndum úr Google eða Yahoo leitarvélunum kjósi notendur svo.

Shahi er ekki einungis stórsniðug lausn sem á erindi við bæði nemendur og kennara heldur vel heppnað dæmi um hvernig mögulegt er að samþætta tvo ólíka, gagnvirka vefi svo úr verði hagnýt þjónusta. Shahi er aðeins eitt dæmi af mörgum um þá gríðarlegu grósku sem einkennir þennan vettvang og vafalítið hafa margar skemmtilegar lausnir litið dagsins ljós sem henta vel í námi og kennslu.

Shahi

Tilurð Shahi undirstrikar ennfremur kosti opinna notendaskila (API) og mikilvægi óhefts aðgangs að gögnum á Netinu. Hér er við hæfi minna á hversu þarft verkefni það er að gera sem allra mest af opinberum gögnum aðgengileg endurgjaldslaust á Netinu. Ég vil einnig sjá útboð um hugbúnaðarsmíði á vegum ríkis og sveitarfélaga gera ríkari kröfur um opin hugbúnaðarleyfi. Verkefni eins og Shahi gæti aldrei orðið að veruleika ef greiða þyrfti fyrir aðgang að gögnunum sem þjónustan gerir sér mat úr. 

Shahi er eins og gefur að skilja ekki áreiðanlegasta myndaorðabók sem til er enda meira til gamans gerð. Fyrst og fremst vegna þess að tengingar á milli mynda og texta byggja á lykilorðum (tögum) notenda á Flickr sem geta verið æði handahófskenndar. Hið sama má segja um tengingar á milli orðaskýringa Wiktionary og mynda af leitarvélunum Google og Yahoo sem væntanlega byggja á heitum myndanna eða skýringartexta sem einnig getur verið ómarkvissur.

Þess má geta að Wiktionary orðabókin er einnig til í íslenskri útgáfu og hvet ég alla sem áhuga hafa að taka þátt í gerð hennar.


Tengt efni

Skráðu athugasemd