Auðskilinn texti
Sigurður Sigurðsson þroskaþjálfi hjá Ás styrktarfélagi hefur samið mjög nytsamlegt rit um auðskilinn texta. Ritið, sem hann nefnir einfaldlega Auðskilinn texti, á erindi við alla þá sem semja texta eða setja fram efni á rituðu máli.
Því miður er það svo að textavinnsla og þættir sem snúa að framsetningu texta og mynda á vef hefur orðið útundan í velflestri umræðu um aðgengi á Netinu. Opinberir aðgengistaðlar snúast almennt um tæknileg atriði, s.s. að ekki skuli nota við útlitsmótun vefja, hvernig tengja skal texta við myndir þannig að sjónskertir eða blindir geti nálgast hann eða hvernig rétt er að setja fram og skilgreina upplýsingar í töflum o.sv.frv.
Nú er ég einn þeirra sem hampar gjarnan mikilvægi opinna staðla á vettvangi vefsmíða sem og vinnubragða við vefhönnun sem tryggja sem best aðgengi netverja. Ég fylgist og vel með aðilum sem mér finnst skara frammúr á þessum vettvangi og varla hallar á nokkurn mann þó ég bendi sérstaklega á Má Örlygsson hjá Hugsmiðjunni og Sjá fyrirtækið í því sambandi. Almennt má þó segja að hönnuðir og vefarar séu orðnir mun meðvitaðri um mikilvægi þessara þátta. Staðreyndin er hins vegar sú að jafnvel þegar aðgengistöðlum er samviskusamlega fylgt er það oft sjálft innihald vefsins sem takmarkar aðgengið.
Í bók Sigurðar má finna mikið af hagnýtum ráðleggingum til þeirra sem stunda efnisvinnslu á vef eða í prentmiðlum. Þar er m.a. fjallað um mikilvægi þess að velja rétt orðafar, rétta leturgerð og stærð. Sigurður bendir einnig á hvernig skýr og einföld skilaboð í stuttum setningum eru líklegri til að skiljast en langar setningar með flóknum samsettum orðum sem jafnvel eru slitin í sundur með bandstrikum. Hér fyrir neðan má sjá staka síðu úr heftinu.
Eins og fram kemur í heftinu getur ritað mál verið mjög fjölbreytt og tekur eins og gefur að skilja oftast mið af því hvaða markhópur kemur til með að lesa það. Fræðilegur texti einkennist t.d. af fræðiorðum og tilvitnunum á meðan texti sem skrifaður er með aðra markhópa í huga einkennist af öðrum þáttum. Það er því alltaf matsatriði á hversu nauðsynlegt eða hversu langt er hægt að ganga til að gera texta auðskiljanlegan sem stærstum hópi lesenda.
Ég veit ekki hvernig útgáfu heftsins verður háttað og bendi því á höfundinn hvað varðar allar frekari upplýsingar.



