Microsoft tilkynnir stuðning Office 2007 við ODF

Skrifað 20. April 2009
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Microsoft hefur tilkynnt um útgáfu á nýjum þjónustupakka fyrir Office 2007 þann 28. apríl nk. Þjónustupakkinn táknar ákveðin tímamót þar sem hann inniheldur löngu tímabæran stuðning Office 2007 við ODF skráarsniðið, þ.e. upprunalegt og sjálfgefið (e. default) skrársnið Open Office hugbúnaðarins. Fram til þessa hefur þurft að sækja sértakar viðbætur við Office 2007 í því skyni að skrifa og lesa skjöl á ODF sniði.

Í dag eru til tveir opnir, ISO vottaðir staðlar fyrir svokallaða skrifstofuvöndla. Þeir eru ODF (Open Document Format) sem á rætur sínar að rekja til Open Office og OOXML (Office Open XML) sem varð til með Office 2007. Þrátt fyrir að það sé ekki viðfangsefni þessa pistils þá hvet ég lesendur til að kynna sér söguna á bak við ISO vottunina á OXML. Sá skrípaleikur þá var settur á svið skaðaði orðspor ISO stofnunarinnar verulega og opinberaði enn og aftur hversu langt Microsoft er tilbúið að ganga til að ná sínu fram. Staðlamál eru yfirleitt ekki spennandi aflestrar, en þessi tragikómedía gæti allt eins verið ættuð úr smiðju Dario Fo

Þjónustupakkinn (service pack 2) sem Microsoft hyggst opinbera síðar í mánuðinum gerir Office 2007 kleift að lesa og vista skjöl sem vistuð er á útgáfu 1.1 af ODF staðlinum. Það eru sannarlega ánægjuleg tíðindi, að þurfa ekki að leita eftir, sækja og setja upp sérstaka viðbót við Office 2007 (sem auðvitað fæstir nenna að hafa fyrir) til að opna Open Office skjöl, en um leið get ég ekki annað en velt því fyrir hvers vegna í ósköpunum Microsoft opnar fyrir þennan möguleika. Það getur varla verið hagkvæmt fyrir hugbúnað sem er í markaðsráðandi stöðu að hleypa helsta keppinautinum svo óþægilega nærri sér. Og þó?

Það er einkum tvennt sem Bill Gates og félagar hjá Microsoft hafa átt afskaplega erfitt með að átta sig á. Annars vegar Internetinu í heild sinni og hins vegar frjálsum og opnum hugbúnaði. Þetta kemur kannski einhverjum á óvart en sagan sannar þetta svo ekki verður um villst. Með fullri virðingu fyrir hugkvæmni og þá ekki síst markaðslegri herkænsku þeirra Microsoft manna þá virðast þeir hafa illilega vanmetið hvort tveggja. Á einhvern dularfullan og jafnframt óskiljanlegan hátt hefur ákvarðanavaldinu þar á bæ tekist að líta nánast með öllu framhjá stórkostlegum tækifærum, einstökum sóknarfærum og ekki síst þeirri augljósri hættu sem þessar nýjungar boðuðu fyrir Microsoft. Hvernig stendur annars á því að enn þann dag í dag getur Microsoft ekki þróað almennilegan vefskoðara?

Mig grunar að ástæðan sé ákaflega einföld, en ég ætla að leggja grunninn aðeins betur. Microsoft er fyrirtæki sem í lengri tíma hefur mótað leikreglurnar og leitt með einræðislegum tilburðum í krafti markaðslegra yfirburða. Þetta er sérstaklega áberandi þegar rýnt er í þróunarsögu vefskoðara þar sem fyrirtækið hefur tamið sér þá vafasömu iðju að hunsa opna, alþjóðlega staðla (W3C recommendations) netverjum öllum til ama og óþurftar. Enda er það svo, að allt frá því Microsoft samþætti Internet Explorer Windows stýrikerfinu hefur engin fylgni verið á milli gæði vefskoðara og markaðshlutdeildar. Þetta þekkja vefarar afskaplega vel, þeir sem í gegnum tíðina hafa eytt óteljandi klukkustundum í að tryggja samhæfni við mis misheppnaðar útgáfur af Internet Explorer vafranum. Það er ekki fyrr en nú á síðustu árum þegar mikilvægi opinna staðla hefur aukist til muna að Microsoft hefur átt erfiðara að fóta sig á þessum markaði og það þrátt fyrir síendurtekin loforð um bót og betrun. Það er engu líkar en eins og þeir sem þar ráða ríkjum kunni ekki þá hógværu list að leika samkvæmt sömu reglum og aðrir.

Hvað opinn hugbúnað varðar þá getur reynst nokkuð erfitt að henda reiður á hernaðartaktík Microsoft svo margslungin hefur hún verið. Í upphafi skipti frjáls og opinn hugbúnaður fyrirtækið litlu sem engu máli þó örugglega hafi stjórnendur þar vitað af tilvist hans. Meistari Gates hafði einfaldlega öðrum hnöppum að hneppa og amatörslegir tilburðir frístundaforritara vöktu takmarkaða athygli hans og auðvitað var hann ekki einn á báti þar. Vafalítið hafa nærtækari keppinautar á við IBM og Apple átt hug hans allan. Skiljanlega. Þetta átti hins vegar eftir að breytast. Þrátt fyrir að Microsoft héldi stöðugt fram yfirburðum sínum gagnvart sambærilegum frjálsum eða opnum hugbúnaði sem smátt og smátt hafði vaxið ásmegin. Pókerspilarinn Gates hafði traust spil á hendi og þóttist engar áhyggjur hafa. Árið 1998 láku út hin svokölluðu Halloween skjöl þar sem fram kom raunveruleg afstaða og það sem verra var, raunverulegar áhyggjur Microsoft af frjálsum/opnum hugbúnaði. Á einu augnabliki varð ljóst að Microsoft taldi frjálsan og opinn hugbúnað alvarlega ógn, hugsanlega þá stærstu sem fyrirtækið glímdi við. Þegar þannig var komið upphugsuðu markaðssnillingar Microsoft nýjar herferðir sem byggðust á vafasömum samanburði á Microsoft lausnum og sambærilegum frjálsum/opnum hugbúnaði. Ég segi vafasömum því herferðir á við Get the facts reyndust að mati margra allt annað en óhlutdrægar.

Svona gekk það í nokkurn tíma að Microsoft kostnaði auglýsingar og rannsóknir þar sem haldið var fram yfirburðum og hagkvæmni þeirra lausna gagnvart sambærilegum frjálsum/opnum hugbúnaði, án umtalsverðs sjáanlegs árangurs Í það minnsta hélt frjáls hugbúnaður áfram að auka markaðshlutdeild sína. Samhliða var gefið í skyn að meginundirstaða frjálsa hugbúnaðarsamfélagsins, þ.e. Linux stýrikerfið, bryti í bága við einkaleyfi og fræg að endemum eru SCO réttarhöldin. En uppskeran var enn og aftur óásættanlega rýr. Hvað er þá til bragðs að taka þegar ekki er hægt að brjóta andstæðinginn á bak aftur með hefðbundum leiðum? Jú þegar ekki er hægt að berjast gegn honum má alltaf að vinna með honum (e. if you can’t beat them join them). Microsoft kúvendi í afstöðu sinni. Stofnaði sérstaka Open Source deild (open source lab) og hóf fyrir opnum tjöldum að vinna að hinum ýmsu verkefnum sem tengdust frjálsum og opnum hugbúnaði. Batnandi fólki er víst best að lifa.

Það er í þessu umhverfi sem Microsoft stendur frammi fyrir Open Office, líklegast hættulegasta keppinauti þeirra á hinum mjög svo verðmæta markaði skrifstofuvöndla. Ekki einungis er Open Office opinn hugbúnaður og því hægt að nýta hann að vild án þess að greiða fyrir krónu í leyfisgjöld heldur er hann fullbúinn skrifstofuvöndull sem inniheldur allt það sem almennir notendur þurfa á að halda. Hér er vanmat ekki valkostur og bugaðir af reynslunni vita innanbúðarmenn hjá Microsoft vel að nú eru góð ráð dýr. Þannig að ég spyr. Hvers vegna að tryggja samhæfni Open Office og Microsoft Office þegar augljóst er að það mun gera áhugasömum notendum einfaldara um vik að skipta úr Microsoft Office yfir í Open Office? Hér kemur ýmislegt til greina:

  • Hugsanlega á Microsoft ekki margra kosta völ. Fyrirtækið hefur opinberað áhuga sinn á því að styðja við frjálsan og opinn hugbúnað svo ekki sé talað um opna staðla. Hvernig getur fyrirtæki sem talar þannig á opinberum vettvangi neitað að styðja við eins mikilvægan opinn staðal og ODF sannarlega er.
  • Kannski er hugmyndin sú að með því að auka samhæfnina á milli Open Office og Microsoft Office reynist einfaldara að vinna markaðshludeild á svæðum þar sem Open Office hefur verið að vinna land undanfarið. Hér má t.d. benda á Suður-Ameríku. Máske er ætlunin að selja stjórnvöldum þar ódýrar útgáfur af Microsoft Office?
  • Ég hef einnig lesið vangaveltur þess eðlis að vegna þess að Office 2007 mun ekki styðja við OOXML staðalinn fyrr en í næstu útgáfu (Office 14 sem kemur út 2010) hafi reynst nauðsynlegt að bjóða upp á stuðning við hinn opna ISO staðalinn, nefnilega ODF. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Sjálfur held ég að innan Microsoft geri menn sér fulla grein fyrir því að ef fyrirtækið styður ekki opinberlega við ODF staðalinn þá muni einhver annar taka að sér að veita slíkan stuðning (sem reyndar hefur þegar gerst og það með fjárhagslegum stuðningi Microsoft). Hver sem ástæðan er þá eru þetta góðar fréttir, þ.e. ef þetta allt saman virkar almennilega. Það væri nefnilega dæmigert af Microsoft að bjóða upp á svo brotakenndan stuðning við ODF að gjörðin muni þegar fram líða stundir gera Open Office meira ógagn en gagn. Ég ætla samt að láta Microsoft njóta vafans þangað til annað kemur í ljós.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni