Þegar þetta er skrifað er openoffice.is vefurinn nýopnaður og úrval af efni þar takmarkað eins og gefur að skilja. Ég geri mér samt góðar vonir um að það muni fljótt breytast, enda er um að ræða hefðbundinn Wiki vef (keyrir á Mediawiki) sem er öllum opinn. Það er óskandi að áhugasamir OpenOffice notendur og velunnarar sameinist um þennan vettvang og nýti þetta tækifæri til að skapa öflugan, opinn og miðlæga upplýsingalind sem þjónað getur einstaklingum, atvinnulífinu og hinu opinbera.
Ég veit t.a.m. að eitt af því sem takmarkar innleiðingu Open Office í skólakerfið er skortur á íslensku kennsluefni. Vonandi er þarna kominn vettvangur til að gera þar bragarbót á.



