Þrjár leiðir til að lesa Drakúla

Skrifað 04. May 2009
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég hef löngum haft sérstakt dálæti á hrollvekjandi bókmenntum, gömlum klassísku verkunum jafnt sem nýrri skrifum. Eins og lög gera ráð fyrir skipar Drakúla eftir Bram Stoker öndvegissess í þessari oft vanmetnu bókmenntagrein enda blaða ég í þeirri bók með reglulegu millibili. Til allrar lukku var Drakúla gefin út fyrir það mörgum árum að nútíma höfundarréttur hefur ekkert með hana að gera. Þegar svo er háttað opnast nýir möguleikar í útgáfu á Netinu. Hér á eftir kynni ég þrjár skemmtilegar leiðir til að lesa Drakúla.

Drakúla samanstendur aðallega af dagbóka- og bréfaskrifum nokkurra aðalpersóna bókarinar ásamt stökum úrklippum úr fréttablöðum sem rekja atburði sem persónur bókarinnar upplifa ekki sjálfar. Bókin kom út í maí 1897 og fyrsta færslan í henni er dagsett 3. maí.

Bloggað um Drakúla

Frásagnarmáti Drakúla og þá sérstaklega sú aðferð að birta dagbókarskrif eða bréf persóna hefur það í för með sér að bókina má auðveldlega setja fram sem blogg þar sem einstaka færslur eru skráðar í réttri tímaröð. Hér má sjá eitt slíkt blogg. Þar sem sagan er nýbyrjuð er alveg kjörið að taka þátt og ekki sakar að samhliða texta bókarinnar má finna þarna ýmsan fróðleik. Athugasemdakerfi bloggvefja er líka eins og kjörið til að skapa umræðu um textann. Ég bíð spenntur eftir því að einhver kennari noti þennan eða álíka vettvang í bókmenntakennslu. Kannski gerir einhver það nú þegar?

Drakúla í tölvupósti

Ég hef áður skrifað um DailyLit þjónustuna en það sakar ekki að minnast á hana aftur. Hver sem er getur skráð sig fyrir aðgangi á Dilylit og valið þar bók eða bækur. Textabútar úr viðkomandi bók (eða bókum) eru síðan sendir reglulega til notenda í tölvupósti (einnig hægt að nota RSS). Hægt er að velja um hvort textar eru sendir á vikudögum eða annan hvern vikudag. Einnig er hægt að velja hvenær dags pósturinn er sendur. Drakúla er í boði á Dailylit og tekur lesturinn alls 176 daga. Ég hef reynt að lesa bók á þennan hátt en verð að viðurkenna að það gekk ekkert allt of vel. Kannski ég reyni aftur við tækifæri.

Drakúla sem vefbók

Það er ekkert einfaldara en að sækja texta Drakúla í heild sinni á Netinu, t.d. á Project Gutenberg.  Önnur leið er að nýta sér netlæga þjónustu sem nefnist BookGlutton. Það kostar ekkert að gerast meðlimur og lesa Drakúla eða fjölda annarra bóka á Netinu. Kosturinn við Bookglutton umfram Project Gutenberg er að á Bookglutton geta notendur spjallað saman og skráð athugasemdir við hverja einustu efnisgrein bóka sem þar er að finna. Bookglutton er því kjörinn vettvangur fyrir kennara sem vilja skapa lifandi umræðu um einstaka bækur. Nýlega opnaði Bookglutton einnig fyrir þann möguleika að varpa (e. embedd) bókum yfir á aðra vefi. Hér fyrir neðan má sjá hvernig hægt er að lesa og spjalla og skrá athugasemdir um Drakúla á sfjalar.net. Skemmtilegt ekki satt?


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni