Blackboard eignast Angel

Skrifað 07. May 2009
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum


Blackboard Inc, framleiðandi Blackboard námsstjórnunarkerfisins, sendi nýlega frá sér fréttatilkynningu
þar sem greint er frá því að fyrirtækið hafi eignast meirihluta í Angel Learning Inc sem framleiðir Angel námsstjórnunarkerfið. Báðar lausnirnar eru nýttar af íslenskum skólum.

Á þessari stundu er ekki augljóst hvaða áhrif yfirtaka Blackboard á Angel kemur til með að hafa á hvora lausnina fyrir sig. Sjálfur hef ég miklar efasemdir um að Blackboard Inc sjái nokkurn hag í því að þróa tvær aðskildar lausnir sem eru í samkeppni sín á milli. Slíkt hefur í það minnsta ekki verið á stefnuskrá hjá fyrirtækinu fram til þessa, þ.e. að halda áfram þróun lausna sem það hefur yfirtekið á þennan máta. Hér má t.a.m. benda á kaup Blackboard á WebCT árið 2005 sem þá var helsti keppinautur fyrirtækisins og umtalsvert stærri biti að gleypa en Angel er í dag.

Í grein á Campus Technology vefnum fullyrðir Michael Chasen framkvæmdastjóri Blackboard (e. president and chief executive officer) að kaupin eigi ekki að hafa áhrif á núverandi viðskiptavini Angel. Ennfremur fullyrðir hann að Blackboard Inc muni halda áfram þróun á Angel LMS og stefnt sé að útgáfu á Angel 7.4 á næstu vikum. Hvað framtíðin ber í skauti sér er hins vegar öllu óljósara eða hvernig má annars túlka þessi orð hans:

He [Chasen] added that, further down the road, Angel’s technologies may be integrated with Blackboard’s. “Longer term, what I think the opportunity is here is to share best practices and technology between Angel and Blackboard and bring to [Angel's] user community great new features [and] functionality and to take some of the best of the Angel features [and] functionality to the Blackboard community.”

He continued: “I’m talking there much longer term. In the short term we’re going to continue to release the next version of the Angel product and continue business as usual.”

Ég velti því fyrir mér hvort nokkur ástæða sé til annars en gera ráð fyrir því að í náinni framtíð muni Blackboard sameina Angel og Blackboard lausnirnar svo úr verði eitt kerfi líkt og gert var með WebCT og Blackboard?

Hvað sem um Angel verður þá er að mínu viti um að ræða rökrétta skref hjá Blackboard sem greinlega rær öllum árum að því að ná algjörum yfirburðum á alþjóðlegum markaði námsstjórnunarkerfa. Það er jú hlutverk fyrirtækja á markaði að ná árangri og skila hagnaði. Og árangurinn er mjög viðunandi svo ekki sé sterkara til orða tekið. Þrátt fyrir gríðarlegt framboð námsstjórnunarkerfa stórra jafnt sem smárra hefur Blackboard nú þegar náð allt að 70% – 80% markaðshlutdeild í bandaríska skólakerfinu og staða þeirra er einnig styrk utan Bandaríkjanna. Hér á landi hefur Reykjavíkurborg innleitt Blackboard, Háskóli Íslands (menntavísindasvið) og þó nokkrir framhaldsskólar. Einu raunverulegu keppinautar Blackboard hvað skólakerfið varðar eru líklegast kanadísku framleiðendur Desire2Learn og margvíslegur opinn hugbúnaður. Eins og fram hefur komið á þessum vef þá stendur Blackboard í lagalegum útistöðum við Desire2Learn, en hefur lofað opnum hugbúnaði griðum. Hugmyndin er væntanlega sú að knésetja Desire2Learn en umbera frjálsa hugbúnaðarsamfélagið; fylgjast vandlega með þróun mála þar og nýta helstu hugmyndir til að styrkja eigin afurðir.

Sú samþjöppun sem nú á sér stað á þessum markaði er því vel skiljanleg út frá hagsmunum markaðsráðandi fyrirtækja sem skiljanlega sjá sér hag í því að útrýma samkeppnisaðilum með því að gleypa þá í einu lagi. Fljótt á litið geta báðar lausnirnar, þ.e. Blackboard og Angel hagnast á auknu samstarfi sem vonandi verður til þess að auka gæði þeirra beggja. Það er alltaf viss styrkleiki falinn í stærðinni. Til lengri tíma litið og þegar horft er á þætti eins og þróun og nýsköpun þá er ekki viss um að þetta séu eins góðar fréttir. Fákeppni leiðir sjaldnast til skapandi lausna og þegar einn aðili hefur viðlíka markaðsstöðu og Blackboard hefur í dag þá er hætt við að það komi niður á þróunarstarfinu. Ég er t.d. minnugur þess sem gerðist um leið og Internet Explorer vafrinn frá Microsoft náði yfirburðarstöðu á markaði, en þá hófst stöðnunartímabil sem enn stendur yfir.

Ég aðhyllist notkun á opnum og frjálsum hugbúnaði í skólastarfi og tilburðir Blackboard til markaðslegra heimsyfirráða styrkja mig enn frekar í þeirri skoðun minni að skólar hér á landi ættu miklu frekar að horfa til opinna lausna, s.s. Moodle, en dýrkeyptra risakerfa þar sem sá valkostur er til staðar. Ég er einnig hugsandi yfir viðbrögðum Angel notenda og mig grunar að þeir séu frekar ósáttir við þessa þróun mála. Ég veit að í Bandaríkjunum hefur nokkuð borið á því að Blackboard notendur hafi skipt yfir í Angel (og reyndar einnig Desire2Learn) og líkað bara vel. Það væri mjög fróðlegt að heyra frá íslenskum Angel notendum og skoðun þeirra á þessu nýjasta útspili Blackboard Inc.

Frekari upplýsingar um yfirtöku Blackboard Inc á Angel


Tengt efni

Skráðu athugasemd