Má ég kynna – Prezi

Skrifað 13. May 2009
Flokkur: hugbúnaður
Engar athugasemdir frá lesendum


Prezi er netlægur hugbúnaður sem gerir notendum kleift að setja saman hvers kyns kynningar eða kennsluefni á nýstárlegan og skemmtilega myndrænan hátt. Þjónustunni er væntanlega ætlað að laða til sín netverja þá sem orðnir eru langþreyttir á ofurstöðluðum framsetningarmáta Powerpoint og sambærlegra lausna.


Prezi er lýsandi dæmi um þær ótroðnu slóðir sem framsæknir hönnuðir og forritarar eru að fara um þessar mundir í framsetningu á innihaldi og notendaviðmóti hugbúnaðar. Frumleikinn hefur að vísu í för með sér nokkuð lengri aðlögunartíma fyrir okkur notendur, en hvað Prezi varðar þá er fyrirhöfnin vel þess virði. Hér fyrir neðan má sjá dæmigerða Prezi kynningu. Notaðu hnappana neðst í hægra horninu til að flakka á milli þátta. Notaðu skrunhjólið á músinni til að stækka/minnka myndflötinn.

Í stuttu máli sagt þá er Prezi einfaldlega stór myndflötur þar sem hægt er að staðsetja að vild texta, grafík, myndir eða myndskeið. Að því loknu er dregin slóð (e. path) um flötin, þ.e. frá einu atriði til þess næsta. Slóðin leiðir svo áhorfendur í gegnum kynninguna.

Ég fékk aðgan að Prezi á meðan þjónustan var enn í lokuðum betaprófunum og varð mjög hrifinn af því sem ég sá. Þegar þetta er skrifað hefur ungverska fyrirtækið sem stendur að hugbúnaðinum opnað dyr sínar almenningi og býður upp á þrjár áskriftarleiðir. Ég ætla s.s. ekki að tíunda mikið um sjálft viðskiptalíkanið en bendi samt á að ókeypis aðgangur er í boði með takmörkuðu hýsingarmagni (100mb).

Prezi er eins og áður segir netlægur hugbúnaður sem keyrður er í gegnum vefskoðara. Ólíkt mörgum öðrum netlægum lausnum er hægt að sækja kynningarsmiðinn sjálfan og keyra sjálfstætt, þ.e. án þess að nettenging sé til staðar. Því miður er þessi valkostur ekki í boði nema í “pro” áskriftarleiðinni. Efni sem unnið er í Prezi geta hins vegar allir notendur sótt á eigin vél og notað án nettengingar. Það er mikill kostur að geta baktryggt sig á þennan hátt því hver kannast ekki við tæknilega örðugleika við nettengingar einmitt þegar mest á reynir.

Ég hef þegar flutt einn fyrirlestur með aðstoð Prezi og gekk það alveg ágætlega. Ég sé svo sem litla þörf fyrir hugbúnað sem þennan þegar um er að ræða hefðbundna framsetningu á efni, þ.e. glærusýningar í anda Powerpoint. Á hinn bóginn getur þessi vettvangur vel gagnast þeim sem vilja reynta eitthvað nýtt og sjá möguleikana í ólíkum framsetningarháttum efnis. Þeir eru vonandi ófáir.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni