Mátaðu Moodle

Skrifað 18. May 2009
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum


Áhugi fyrirtækja og opinberra aðila á opnum og frjálsum hugbúnaði hefur aukist jafnt og þétt samhliða veikingu íslensku krónunnar. Námsstjórnunarkerfi eru þar engin undantekning enda dýrkeyptur hugbúnaður. Ég fullyrði að skólar sem borga leyfisgjöld af erlendum hugbúnaði gætu sparað umtalsverðar fjárhæðir með því að innleiða Moodle námsstjórnunarkerfið.


Val á námsstjórnunarkerfi stór ákvörðun og innleiðing slíkrar lausnar vandaverk. Ef vel á að fara verður að hafa marga samverkandi þætti í huga sem snerta m.a. hugbúnað, kennsluhætti, kennara, stuðningsaðila og stjórnendur. Ég get því ekki mælt undantekningarlaust með einu kerfi öðru fremur einungis vegna þess að ekki þarf að greiða af því leyfisgjöld. Kostnaður er hins vegar ekki eina ástæðan fyrir því að velja Moodle.

Moodle hefur þegar sannað sig í íslensku skólakerfi. Það hefur verið þýtt á íslensku og er í notkun á öllum skólastigum hér á landi að leikskólanum undanskildum. Moodle er einfalt í notkun fyrir kennara og nemendur og inniheldur allar nauðsynlegar einingar og virkni netbundinna námsumhverfa. Moodle er þar að auki í stöðugri þróun og útgáfa 2.0 væntanleg á árinu. Myndast hefur öflugt og mjög virkt samfélag Moodle notenda á Moodle.org þar sem hægt er að sækja ráðgjöf, aðstoð og faglegan félagskap.

Einfaldasta leiðin fyrir áhugasama að máta sig við Moodle er skrá sig fyrir ókeypis aðgangi að Key to School vefnum og opna þar sinn eigin Moodle vef. Salvör Gissurar benti mér á Key to School og kann ég henni góðar þakkir fyrir. Hægt er að velja úr fjölda smekklegra sniðmáta og eigin lén ef svo ber til. Íslenskan virkar líka vel. Hér má sjá sýnishorn af frekar tómlegum Moodle vef sem hýstur er á Key To School.


Tengt efni

Skráðu athugasemd