Fimm frábær myndskeið

Skrifað 25. May 2009
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum


Ég hef skrifað áður um sum hver þessara myndskeiða og birt önnur á forsíðu vefsins. Öll eiga það sameiginlegt að eiga erindi við kennara sama á hvaða skólastigi þeir starfa eða fag þeir hafa helgað sér.

Ken Robinson

Do Schools Kill Creativity?

Ken Robinson er líklegast uppáhalds fyrirlesarinn minn og þessi fyrirlestur sem hann hélt á TED ráðstefnunni margfrægu árið 2006 er örugglega einn sá besti sem þar hefur verið haldinn.

Ég mæli einnig með bókinni Out of Our Minds: Learning to be Creative eftir Robinson. Ég er einnig spenntur að lesa nýjustu bókina hans The Element: How Finding Your Passion Changes Everything.

 

Hans Rosling

Myths About the Developing World

Hans Rosling er prófessor við Karolinska Instituted og framkvæmdastjóri Gapminder stofnunarinnar sem m.a. stendur að hönnun Trendalyzer hugbúnaðarins magnaða. Trendalyser leikur einmitt stórt hlutverk í þessum frábæra fyrirlestri þar sem Rosling fer algjörlega á kostum. Þess má geta að Google eignaðist Gapminder árið 2007.

Trendalyser hugbúnaðurinn er aðgengilegur hverjum sem vill á vef Gapminder. Þetta er einstakt verkfæri sem ég hvet kennara að kynna sér betur. Á vef Gapminder eru fleiri myndskeið með Rosling, t.a.m. þetta hér þar sem hann fjallar um fjölmiðlafárið í kringum svínaflensuna.

 

Michael Wesch

A Vision of Students Today

Michael Wesch er kennari við ríkisháskólann í Kansas þar sem hann m.a. rannsakar áhrif nýmiðla á mannleg samskipti. Wesch er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir í kennslunni þar sem hann nýtir til fulls upplýsingatæknina. Þetta myndskeið er m.a. afrakstur einu námskeið hans.

Ég mæli með bloggvefnum Digital Ethnography sem Wesch heldur úti í tengslum við kennslu sína.

 

Michael Wesch

The Machine is Us/ing Us

Hér er annað myndskeið eftir Michael Wesch, ekki síður áhrifamikið en það fyrra. Framsetningin er frumleg og mjög svo í takt við viðfangsefnið. Ég man hvernig þetta myndskeið fór eins og stormur um Netið á sínum tíma.

Ég mæli einnig með myndskeiðinu Information R/evolution.

 

Karl Fisch, aðlagað af Scott McLeod

Did You Know? 3.0

Stutt en vönduð og hnitmiðuð hugvekja um hinn flata heim sem við lifum öll í. Til í fjölmörgum útgáfum og var á sínum tíma kosin besta glærusýningin á Slideshare.

Ég les oft starfsþróunarblogg kennaranna við Arapahoe skólann þar sem Karl Fisch starfar. Mæli með því.

Að sjálfsögðu eiga miklu fleiri myndskeið skilið að lenda á lista sem þessum. Hvað finnst ykkur? Það væri gaman að fá ábendingar um áhugaverð myndskeið sem kennarar hafa notað í kennslu eða finnst snerta starf sitt og vettvang á einhvern máta.


Tengt efni

Skráðu athugasemd