Eitt (enskt) orð á dag

Skrifað 01. June 2009
Flokkur: enska
Ein athugasemd frá lesendum

Undanfarið hef ég fengið daglegar póstsendingar frá netlægri þjónustu sem nefnist Weboword. Bréfin samanstanda hvert og eitt af einfaldri teikningu og meðfylgjandi texta þar sem kynnt er til sögunnar eitt enskt orð og skilgreining á merkingu þess.

Orð dagsins í dag (1. júní) er Ostentatious. Hér má sjá myndina sem fylgdi póstinum.

ostentatious

Ég get vel ímyndað mér að enskukennarar gætu nýtt sér þjónustu sem þessa með nemendum sínum. Auk skilgreiningar á viðkomandi orði fylgja upplýsingar um framburð, helstu samheiti og sýnishorn af notkun.

Áskrift að að Weboword er endurgjaldslaus og þarf einungis að gefa upp tölvupóstfang viðkomandi á Weboword.com vefnum. Efni þjónustunnar er varið samkvæmt leyfisskilmálum Creative Commons sem kemur sér einstaklega vel fyrir kennara sem vilja byggja á því eða samþætta efnið öðru kennsluefni.


Tengt efni

1 athugasemd við “Eitt (enskt) orð á dag”

  1. WeboWord skrifar:

    Dear Sir

    A warm hearted thanks for mentioning WeboWord on your esteemed site. However, we haven’t been able to understand most of it being in Icelandic. :(
    Would it be possible to share with us your feedback in English. It would be fabulous to know and understand your thoughts and comments about us and learn & improve from them as well.

    Thanks and warm regards,
    WeboWord

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni