Heim

Skrifað 08. June 2009
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Það fór heldur lítið fyrir alþjóðlega umhverfisdeginum (World Environment Day) hér á landi, en hann var haldinn hátíðlegur um heim allan þann 5. júní sl. Í tilefni af deginum frumsýndi ljósmyndarinn Yann Arthus-Bertrand heimildamyndin Home sem er allt í senn uppfræðandi ferðalag um heim allan, sjónræn listasmíð og alvarleg áminning um hvernig fyrir okkur jarðarbúum er komið.

Home er heildstæð frásögn um þann heim sem við búum, ljóðrænt listaverk þar sem hver einstakur myndrammi ber vitni ólýsanlegri og stundum hrikalegri fegurð náttúrunnar. Hún er falleg, uppörvandi og sorgleg allt í senn.

Home er hægt að horfa á í heild sinni á YouTube þar til 14. júní nk. Frekari upplýsingar um myndina má finna á vef verkefnisins.

Þess má geta að í dag, 8. júní, er fyrsti alþjóðadagur hafsins, einkunnarorð hans eru “okkar höf – okkar ábyrgð”.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni