Safnmyndir í námi og kennslu
Eins og svo margir kennarar nýti ég mér gjarnan ljósmyndir og teikningar hverskonar í starfi mínu. Ég þarf reglulega á fjölbreyttu myndefni að halda við verkefnasmíði eða aðlögun námsefnis en einnig vil ég geta bent nemendum mínum á myndir sem þeir geta notað endurgjaldslaust og lögum samkvæmt.
Nýlega rakst ég á gott myndasafn sem inniheldur mikinn fjölda safnmynda á vektor sniði (e. clipart) sem heimilt er að nota endurgjaldslaust. Safnið er á slóðinni clker.com. Ég hef þegar nýtt mér nokkrar myndir þaðan í verkefni sem ég er að vinna um þessar mundir og get hiklaust mælt með því. Á vefnum eru reyndar birtar auglýsingar en þær trufla lítið og innskráningar er ekki krafist og er það vel. Leit er þokkalega öflug sem ég tel mikinn kost. Ágætur vitnisburður um fjölda mynda í safninu er myndin hér að neðan sem sýnir þó ekki nema brot af leitarniðurstöðum fyrir leitarorðið “dog”.

Þar sem myndirnar eru á vektorsniði eru þær vistaðar á png, svg eða odg sniðum. Í flest almenn brúk held ég að png sniðið henti ágætlega.
Gott myndasafn er happafengur fyrir kennara og nemendur enda reyni ég að halda vel utan um þau söfn sem ég tel hagnýt öðrum fremur. Það geri ég á wikivef FB á slóðinni http://wiki.dreifnam.is/index.php/Myndasöfn. Ég legg mesta áherslu á myndasöfn þar sem hægt er að sækja myndir án endurgjalds en vísa þó á nokkrar þjónustur þar sem hægt er að kaupa vandaðar myndir á skaplegu verði.
Allar ábendingar um gagnleg myndasöfn eru vel þegnar.



July 9th, 2009 at 3:35
Vil benda á það að odg-sniðið er væntanlega hannað sem “extensions” fyrir OpenOffice til að flytja allt myndasafn Clker inn í myndagallerý OpenOffice 3 í einu lagi. Skil ég það ekki rétt? Vigfús
July 9th, 2009 at 6:22
ODG er skráarsniðið sem OpenOffice Draw notar fyrir teikningar (vektora). Það er til sérstök OpenOffice viðbót (extension) sem býr til tengingu á milli Clker og OpenOffice. Hún virkar þannig að skráðir notendur á Clker vefinn geta safnað myndum í körfu sem er svo aðgengileg í OpenOffice.