Meebo hefur undanfarið verið að skapa sér gott nafn sem áreiðanleg samskiptalausn og nýta yfir 40 milljón manns um heim allan þjónustu fyrirtækisins, samkvæmt upplýsingum á vef þess. Meebo er ennfremur öllum ókeypis og mjög einfalt í notkun. Moodle inniheldur rauntímaspjall (chatroom) en alls ekki jafn aðlaðandi og Meebo því miður.
Ég nýti Meebo til rauntímasamskipta í Moodle á þann hátt að ég bý til spjallvettvang þar sem nemendur geta haft samband við mig ekki ósvipað og tíðkast með msn-spjallinu. Ég kynni þennan spjallkost sérstaklega í staðbundnum lotum og hvet nemendur til að hafa samskipti við mig á þennan máta þegar það á við. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá hvernig Meebo spjallboxið verður hluti af Moodle umhverfinu.

Rauntímaspjall er mikilvægur þáttur í fjölmörgum áföngum sem ég kenni í gegnum Moodle. Helst hefur það komið gagni í hugbúnaðarkennslu, s.s. UTN 103 áfanganum þar sem kennd er grunnfærni í Powerpoint, Word og Excel. Í þessum áfanga er verkefnavinna mikil og því áríðandi að nemendur geti fengið sem fyrst lausn á vandamálum sem upp koma. Ég kenni m.a. þennan áfanga við Kvöldskólann í FB þar sem tímasókn er frjáls og vikulegar kennslustundir færri heldur en í almenna náminu. Áfanginn er einnig kenndur á blönduðu sniði (blended learning) og fer hann þá næstum alfarið fram í gegnum Moodle nema hvað opnir tímar eru einu sinni í viku. Eins og gefur að skilja er það mikill kostur fyrir nemendur að geta leitað aðstoðar hjá kennara þegar þannig er háttað.
Ég nota gjarnan Meebo rauntímaspjallið samhliða Jing á þann hátt að þegar nemendur senda fyrirspurnir í gegnum spjallið þá get ég sett saman skjámynd með skýringum á örstuttum tíma og sent til baka.
Uppsetning á Meebo í Moodle
- Til þess að nýta Meebo verður fyrst að skrá sig fyrir aðgangi í kerfið.
- Næsta skref felst í því að sækja kóðann á bak við spjallkerfið. Það er gert með því að velja Preferences>meebo me widgets. Kóðinn er sóttur með því að afrita textann í reitnum fyrir aftan Widget embed. Hægt er að útlitsmóta spjallboxið með því að smella á Modify hnappinn. Ég mæli með útlitsmótun því þar er hægt að setja titil á spjallið og birta nafn kennara.
- Þá er búin til ný HTML blokk í Moodle og kóðinn afritaður yfir í hana. Athugið að vera í kóðaham þegar það er gert.
Notkun á Meebo í Moodle
Til þess að taka á móti skilaboðu í gegnum Meebo verður viðkomandi að vera skráður inn í Meebo kerfið. Allra einfaldasta leiðin til að nota Meebo er að sækja agnarsmátt ókeypis forrit sem nefnist Meebo Notifier (einungis til á windows) og setja upp á þeim tölvum sem ætlunin er að nota með Meebo.
Meebo Notifier hvílir hljóðlátt á tækjastikunni neðst í hægra horni en birtir tilkynningarglugga um leið og einhver reynir að hafa samband í gegnum Meebo spjallið. Þegar smellt er á þessa tilkynningu opnast vefskoðari (ef hann er ekki þegar opinn) og hægt er að spjalla við viðkomandi.

Lítið mál er að spjalla við fleiri en einn aðila í einu í gegnum Meebo. Í slíkum tilfellum opnast fleiri spjallgluggar á Meebo vefnum í vefskoðaranum.


