Um er að ræða fjölda smárra, vandaðra forrita sem eru eins og sniðin fyrir gagnvirkar töflur, þó auðvitað megi nota þau á margvíslegan annan hátt. Hér eru örfá dæmi um það sem í boði er.
Snúningsdiskur með átta merkimiðum

Í þessu forriti er hægt að skrá texta við átta merkimiða og snúa svo örinni þannig að hún lendi á einum þeirra að handahófi. Ég get ímyndað mér allskonar not fyrir svona hugbúnað í kennslu og þar sem enski textinn er alveg í lágmarki kemur hann ekki að sök. Í hugbúnaðarsafninu má finna fleiri útfærslur af snúningsdiskum og er vel þess virði að kynna sér þær betur.
Sveiflusjá (swingometer)

Þetta smáforrit virkar þannig að skráð eru tvö orð, nest í hornið vinstra- og hægrameginn á skjánum. Síðan er hægt að færa örina með músinni þannig að hún bendi annað hvort til vinstri eða hægri. Ég sé fyrir mér að það væri gaman að nota þetta í rökræðum tveggja liða þar sem sveiflusjáin (betri þýðing óskast) sýnir hvort liðið hefur betur. Það væri gaman að fá fleiri skemmtilegar hugmyndir frá lesendum um notkun á þessu forriti.
Orðaseglar

Hér er hægt að skilgreina fjölda stakra orða eða heilar setningar sem svo eru birtar á skjánum. Hvert orð er þá eins og segull sem hægt er að draga um skjáinn og staðsetja að vild. Hægt er að stækka orð og minnka og einnig breyta litnum á því. Þennan hugbúnað má nota á ótal mismunandi vegu.
Öll forritin á vef Triptico eru aðgengileg án endurgjalds og styðja við íslenska bókstafi.


