Allt sem þig langar að vita um Joomla 1.6

Skrifað 27. July 2009
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Ný útgáfa af Joomla vefumsjónarkerfinu, Joomla 1.6, er í farvatninu, en gert er ráð fyrir að fyrsta betaútgáfan líti dagsins ljós í byrjun ágústmánaðar. Þann 7. júlí s.l kynnti Andrew Eddie helstu breytingar og nýjungar í útgáfunni fyrir áströlskum Joomla notendum og hef ég tekið saman helstu atriðin úr kynningu hans ásamt skjámyndum úr Alpha útgáfunni af Joomla 1.6

Ljóst er að Joomla 1.6 mun gera auknar kröfur á undirliggjandi hugbúnað, en uppsetning krefst í það minnsta PHP 5.2 og MySQL 5.0.4. Ég geri ekki ráð fyrir að þetta skapi mikil vandamál hjá notendum, í mesta lagi þarf að uppfæra einhverja vefþjóna.

Uppsetning á Joomla frá grunni er jafn einföld og verið hefur, en uppfærslur eiga örugglega eftir að reynast dálítið strembnar ef um stóra og flókna vefi er að ræða. Það á eftir að koma betur í ljós hvernig uppfærslur ganga þegar endanleg útgáfa fer í loftið en væntanlega verða þeir betur staddir sem uppfæra úr Joomla 1.5 heldur en eldri útgáfum. Eitt er víst að við uppfærslur munu slóðir örugglega breytast frá því sem var.

Viðbætur (e. extensions) verður að uppfæra eigi þær að styðja við Joomla 1.6 og helgast það fyrst og fremst af spánýrri og öflugri aðgangsstýringu. Svokallaður “legacy layer” sem gerði notendum kleift að keyra viðbætur og sniðmát úr Joomla 1.x á Joomla 1.5+ verður fjarlægður og því aðeins hægt að nota viðbætur sem styðja fyllilega við nýju útgáfuna. Það mun verða einfalt uppfæra þær viðbætur sem styðja nú þegar við Joomla 1.5 (þ.e. “native”) en meiri vinna verður að uppfæra viðbætur sem hannaðar eru fyrir eldri útgáfur af kerfinu.

Innbyggða skoðanakannanaeiningin (e. polls) verður ekki til staðar í nýju útgáfunni og verða vefstjórar þess í stað að notast við einhverja af þeim fjölmörgu viðbótum sem hafa sömu virkni. Ástæðan er sú að þessi eining þótt einfaldlega ekki nógu góð. Á þessari stundu er ekki öruggt hvort innbyggði stuðningurinn við PDF, þ.e. að geta breytt greinum í PDF skjöl, fái að halda sér en sú virkni hefur alltaf verið frekar brotakennd í Joomla.

Efnisvinnsla

Frá og með Joomla 1.6 verður innihaldi ekki lengur skipað í hluta (e. sectons) heldur verða einungis til staðar flokkar (e. categories). Hinir nýju flokkar verða mun sveigjanlegri en fyrirrennarar þeirra og t.a.m verður hægt að búa til undirflokka að vild. Ég geri fastlega ráð fyrir því að þessi breyting, sem margir hafa kallað á, muni hafa einhver ófyrirsjáanleg áhrif þegar vefir verða uppfærðir úr eldri útgáfum í 1.6 þar sem öllum hlutum verður breytt í yfirflokka. Sjálfur tel ég þessa breytingu til mikilla bóta enda er fyrirkomulagið eins og það er núna mjög takmarkandi.

joomla16-flokkar

Eins og áður getur hver einstök grein (e. article) einungis tilheyrt einum flokk og er ekki áætlað að breyta þeirri högun. Notendur sem telja sig þurfa þess geta flokkað efni á annan hátt og geta t.d. notað til þess viðbætur sem styðja við tög (e. tags).

Sniðmát

Vefstjórar koma til með að þurfa að gera nokkrar breytingar á sniðmátum til að þau styðji Joomla 1.6 þar sem einhverjar breytingar verða á css stílum. Ég geri ekki ráð fyrir meiriháttar breytingum fyrir Joomla 1.5 notendur en gömul sniðmát sem hönnuð eru fyrir eldri útgáfur af Joomla þarf örugglega að breyta nokkuð.

Notendaumsýsla og aðgangsstýring

Joomla 1.6 inniheldur öflugt aðgangskerfi sem gerir vefstjórum kleift að skipa notendum í hópa (e. groups) sem síðan eru tengdir við ákveðið aðgangsstig (e. level). Við uppsetningu á kerfinu verða til sjálfgefnir hópar og aðgangsstig, en notendur geta aðlagað þá sem fyrir eru eða búið til eigin að vild.

joomla16-usergroups

Til að útskýra á sem einfaldastan hátt hvernig hópar og aðgangsstig í Joomla 1.6 virka má segja að hópurinn sem viðkomandi notandi er settur í ráði því hvað hann geti gert í kerfinu á meðan aðgangsstigið ræður því hvað hann “sér”. Hver einstakur notandi getur verið í einum eða fleiri hópum.

joomla16-accesslevels

Þessar breytingar að aðgansstýringu notenda eru mjög kærkomnar og einn mikilvægasti þátturinn í hinni nýju Joomla útgáfu. Það hefur löngum verið akkilesarhæll Joomla hversu takmarkaðar aðgangsstýringarnar eru.

Valseðlar

Umsýsla með valseðlum hefur undirgengist nokkrar breytingar. Sumar þeirra eru minniháttar og tengjast nýja aðgengskerfinu en viðamesta breytingin er á viðmótinu sem mætir notandanum þegar hann bætir atriði á valseðil. Reyndar þarf ennþá að skrá töluvert af upplýsingum þegar nýtt atriði er sett á valseðill en viðmótið er aðgengilegra en áður og býður auk þess upp á aukna eiginleika fyrir þróunaraðila.

joomla16-menus

Viðbætur

Það hefur löngum verið galli á Joomla hversu tímafrekt það er að fylgjast með þróun á viðbótum (e. extensions) og uppfæra þegar þörf krefur. Gamlar og/eða gallaðar viðbætur geta stefnt öryggi vefsins í voða og því mjög brýnt að fylgjast vel með og uppfæra viðbót þegar ný útgáfa er gefin út.

Í Joomla 1.6 verður mun einfaldara en áður að fylgjast með viðbótum auk þess sem uppfærslur á þeim verða afar einfaldar.

joomla16-extensions

Einnig verður auðveldara að fylgjast með uppsettum viðbótum, t.d. hafi eitthvað farið úrskeiðis við uppsetningu.

Eitthvað alveg nýtt

Joomla 1.6 er fyrst og fremst viðamikil uppfærsla á Joomla vefumsjónarkerfinu þar sem áhersla er lögð á lagfæringar og löngu tímabærar endurbætur. Sumt því sem hér hefur verið kynnt til sögunnar eru eiginleikar sem margir vonuðust til að sjá í útgáfu 1.5 af kerfinu en eru nú loksins að verða að veruleika. Einn glænýr eiginleiki hefur þó ratað í þessa útgáfu og nefnist hann “Redirect” og gefur vefstjórum kost á því að láta eina slóð vísa á aðra.

joomla16-redirect

Það gæti verið að þessi nýtilkomni eiginleiki tengdist því eitthvað að við uppfærslu yfir í Joomla 1.6 koma slóðir vefja til með að breytast (t.d. vegna þess að ekki eru til hlutar e. categories lengur). Með því að nota “Redirect” verður hægt að láta úreldar slóðir vísa á réttan stað. Ég held samt að þegar um stóra vefi er að ræða að þá gæti það reynst nokkuð tímafrekt að setja upp slíkar endurvísanir, en það verður þó allavega gerlegt.

Að lokum

Ég legg áherslu á að ennþá er Joomla 1.6 í þróun þannig að skjámyndir þær sem hér eru birtar eiga örugglega eftir að breytast eitthvað í endanlegri útgáfu. Hér má fylgjast með erindi Andrew Eddie í heild sinni. Glærurnar eru einnig aðgengilegar á Slideshare.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

On the powers of time

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni