Forvo er notendadrifin þjónusta og getur hver sem er skráð sig fyrir ókeypis aðgangi og lagt sitt af mörkum með því að hljóðrita framburð orða á eigin tungumáli. Forvo er, samkvæmt því sem segir á vefnum, stærsta safn framburðardæma sem fyrirfinnst í heiminum.
Framburðardæmi á Forvo má spila á vefnum, vista sem mp3 skrár eða varpa beint á aðra vefi eða inn í námsstjórnunarkerfi. Svona er t.a.m. Brahmavaivarta Purana borið fram á sanskrít, en það mun vera nafnið á einum af 18 helgitextum Hindúa.
Ekki get ég dæmt um ágæti framburðarins en sú virkni er til staðar á vefnum þannig að ef ég er t.d. ósáttur við framburð á íslensku orði þá get ég gefið viðkomandi hljóðupptöku einkunn. Ég get einnig hljóðritað eigin upptöku á orðinu og þannig aukið við safnið. Hljóðritunin fer fram í gegnum vefinn og er ferlið mjög einfalt.
Forvo má einnig beintengja við leitarvélarglugga Internet Explorer og Firefox vefskoðarana og einfalda þannig leit eftir framburði á orðum.


