Komið er að leiðarlokum hjá Joomla 1.0 – hvað er til ráða?

Skrifað 16. August 2009
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Tuttugasti og annar júlí sl. markaði endalok útgáfu 1.0 af Joomla vefumsjónarkerfinu. Joomla 1.0.X hefur þar með runnið sitt skeið á enda og verður ekki viðhaldið eða þróað frekar.

Notendur Joomla 1.0.X hafa því um tvo kosti að velja. Annað hvort að uppfæra í nýrri útgáfu, s.s. Joomla 1.5 eða þá skipta um vefumsjónarkerfi. Hafið eftirfarandi í huga:

  • Engar fleiri öryggisuppfærslur verða gefnar út og því nær öruggt að vefir sem keyra á Joomla 1.0 útgáfum verða ótryggir. Það er ekki skemmtilegt að sjá vefinn sinn “hakkaðann”.
  • Engar fleiri nýjungar munu líta dagsins ljós og hætt við að vefir staðni fljótt þegar svo ber undir. Auk þess sem Joomla 1.0 er auðvitað barn síns tíma.
  • Ekki mun líða á löngu áður en hætt verður að uppfæra hinar fjölmörgu viðbætur (e. plugins) sem styðja við Joomla 1.0. Það mun auka áhættu á öryggisglufum. Þessi þróun er þegar hafin.
  • Nýjar viðbætur verða varla þróaðar fyrir Joomla 1.0 þar sem þróunaraðilar munu örugglega horfa til nýrri útgáfa í þeim efnum.
  • Nýrri útgáfur af Joomla einfalda til muna gerð vefja í samræmi við alþjóðlega, opinbera staðla, t.d. hvað notkun á töflum og öðru sem varðar aðgengi vefja. Hér er ég kannski frekar að horfa til Joomla 1.6.
  • Nýrri útgáfur af Joomla innihalda margvíslega eftirsóknarverða eiginleika enda hefur mikil vinna verið lögð í að endurbæta kerfið. Joomla 1.5 er t.a.m. nánast endurskrifað frá grunni.

Það verður að segjast eins og er að uppfærsla úr Joomla 1.0 yfir í Joomla 1.5 getur reynst verðugt verkefni. Að sjálfsögðu fer það allt eftir umfangi og flækjustigi vefs og þá sérstaklega ef um er að ræða vef sem inniheldur margar viðbætur (e. plugins) og jafnvel séraðlaganir. Uppfærsla á sniðmáti (eða sniðmátum ef um fleiri en eitt er að ræða) er einnig nauðsynleg en yfirleitt er það ekki stórmál.

Uppfærsla á Joomla 1.0 yfir í Joomla 1.5

Ef til vill er ekki alveg rétt að nota orðið uppfærsla um þetta ferli þar sem Joomla 1.0 hugbúnaðurinn er ekki uppfæður sem slíkur heldur eru gögn flutt úr Joomla 1.0 uppsetningu og þeim breytt með sérstakri viðbót (migration component). Gögnin eru svo flutt inn í nýja Joomla 1.5. uppsetningu sem kemur í stað þeirrar gömlu. Ef uppfæra þarf sniðmát er það gert sérstaklega og felur í sér breytingar á HTMl og CSS kóðanum.

Hvað með Joomla 1.6?

Joomla 1.5 inniheldur svokallað “legacy mode” sem gerir þeirri útgáfu kleift að innihalda ákveðna hluti sem skrifaðir voru fyrir eldri útgáfur lausnarinnar, s.s. sniðmát. Frá og með Joomla 1.6 verður þessi virkni ekki í boði og því mæli ég eindregið  með því að við uppfærslu frá Joomla 1.0 yfir í Joomla 1.5 verði gerðar nauðsynlegar breytingar á sniðmáti vefsins þrátt fyrir að Joomla 1.5 styðji við það óbreytt í “legacy mode”. Það einfaldar nefnilega uppfærsluna frá Joomla 1.5 yfir í Joomla 1.6 sem einnig krefst gagnabreytinga þar sem högun á gagnagrunni breytist á milli þeirra útgáfa. Reyndar verður einnig að breyta sniðmáti Joomla 1.5 vefja til að þau styðji fullkomlega við Joomla 1.6 en uppfærsla úr Joomla 1.5 yfir í Joomla 1.6 er mun einfaldari viðureignar en úr Joomla 1.0 yfir í Joomla 1.5.

Hvað með að bíða eftir Joomla 1.6?

Áætlað var að fyrsta betaútgáfan af Joomla 1.6 yrði opinberuð í upphafi ágústmánaðar en nú er ljóst að hún mun varla verða birtingarhæf fyrr en í byrjun september. Betaútgáfur eru þróunarútgáfur af hugbúnaði og þrátt fyrir að vera tilbúnar til notendaprófana er óráðlegt, svo ekki meira sé sagt, að nýta þær sem fullbúnar lausnir. Venju samkvæmt verða gefnar út fleiri en ein betaútgáfa af Joomla 1.6 eftir því sem vinnan við lausnina heldur áfram. Varlega áætlað má búast við því að nothæf útgáfa líti dagsins ljós í kringum næstu áramót.

Ég mæli því sterklega með því að notendur Joomla 1.0.X vefja uppfæri sem fyrst í Joomla 1.5 og síðan yfir í Joomla 1.6 þegar “endanleg” útgáfa er tilbúin.

Ráðgjöf og aðstoð við uppfærslu

Ég veiti ráðgjöf og aðstoð við uppfærslu á Joomla kerfinu og sniðmátum. Hafið samband.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni