Microsoft kynnir Math Worksheet Generator

Skrifað 06. September 2009
Engar athugasemdir frá lesendum

Ein af fjölmörgum tilraunastofum Microsoft hefur opinberað frumútgáfu af sérlega kennaravænum og þar að auki ókeypis hugbúnaði sem nefnist Math Worksheet Generator. Eins og nafnið ber með sér er um að ræða verkfæri til að framkalla hverskyns stærðfræðiverkefni.

Ég var nokkuð vongóður þegar ég sótti og prufukeyrði þessa nýjustu afurð stærsta hugbúnaðarfyrirtækis veraldar vitandi að innan dyra þess starfa hundruð sérfræðinga sem vafalítið er vel treystandi til að setja saman gagnlegan hugbúnað. Vonbrigðin urðu því töluverð þegar í ljós kom að um var að ræða lítið annað en ófullburða tilraunaútgáfu af hugbúnaði sem er mun takmarkaðri en samskonar forrit sem standa kennurum til boða nú þegar.

Math Worksheet Generator er nefnilega langt því frá fyrsti hugbúnaðurinn sem þróaður er til að einfalda og flýta fyrir framleiðslu á stærðfræðiefni. Sérfræðingum Microsoft til málsvarnar má þó segja að þeir nálgast viðfangsefnið á áhugaverðan og líklegast frumlegri hátt en flestir aðrir.

Math Worksheet Generator er einfalt forrit sem býr til stærðfræðiefni samkvæmt forskrift. Efnið sem skapað er í hugbúnaðinum er varpað á sjálfvirkan hátt yfir í Microsoft Word ritvinnsluna eða á HTML snið ef Word er ekki til staðar. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig forritið vinnur úr einföldu stærðfræðidæmi.

Math Worksheet Generator

Þar sem Word 2007 er til staðar (mælt er með þeirri útgáfu) opnast sá hugbúnaður um leið og Math Worksheet Generator hefur lokið sínu verki og birtir tölusett stærðfræðidæmi og lausnir við þeim. Nú getur kennarinn tekið við og breytt skjalinu að vild og prentað eða vistað.

word-mathgenerator

Það sem helst angar mig við Math Worksheet hversu ósköp takmarkað forritið er í núverandi útgáfu. Ég átti von á einhveru bitastæðara frá Microsoft. Á hinn bóginn verður auðvitað að segjast eins og er, að um algjöra frumútgáfu er að ræða og því kannski ósanngjarnt að gera sér of miklar væntingar. Það er bara vonandi að Microsoft haldi áfram að þróa þennan hugbúnað þannig að úr verði nothæft verkfæri fyrir kennarar og auðvitað alla aðra sem áhuga hafa. Þangað til sú útgáfa lítur dagsins ljós mæli ég með Math Resource Studio 4 Lite (ókeypis) eða Math Resource Studio 4 sem reyndar kostar um 8000 kr á gengi dagsins í dag en ég held að þeirri upphæð sé vel varið í vandaðan hugbúnað.


Tengt efni

Skráðu athugasemd