Close

Svona gerum við

Námsefni

Skapandi skólastarf, opnar leiðir í námi og kennslu

Skráning er hafin á ráðstefnu 3F og Rannum sem haldin verður þann 2. október 2009 í Háskóla ísland. Í ár verður meginviðfangsefnið skapandi skólastarf en 2009 er einmitt Evrópuár skapandi hugsunar og nýsköpunar.

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar í ár er Dr. Sugata Mitra sem er líklegast hvað þekktastur fyrir “Hole in the wall” tilraunirnar í fátækrahverfum Indlands. Ég hlakka mikið til að hlusta á erindi hans. Aðrir fyrirlesarar eru m.a.: Jóna Karen Sverrisdóttir sem mun fjalla um nýja könnun á notkun barna og unglinga á Netinu og nýmiðlun, Þorvaldur Þorsteinsson sem mun fjalla um skapandi skólastarf og Ida Marguerite Semey sem talar um “Mobile learning”. Ég er dálítið forvitinn um síðastnefnda erindið enda hefur “Mobile learning” (er til almennileg þýðing á hugtakinu) ekki verið mikið í umræðunni hérlendis.

Eftir hádegi verða svo í boði fjölmargar áhugaverðar málstofur þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hægt er að kynna sér dagskrá ráðstefnunnar í heild sinni á vefnum.

Skráning á ráðstefnuna fer fram á vef 3F og er ráðstefnugjaldið 5000 kr.


Tengt efni

Skráðu athugasemd