Maður er nefndur Kelly Walsh og heldur úti áhugaverðum vef sem hann titlar Emerging Internet Technologies for Education. Nýlega birti Walsh stutta könnun á vefnum sínum þar sem hann ávarpaði kennara og spurði þá hvaða tækni (internet technologies) þeir hefðu áhuga á að reyna í fyrsta skipti í starfi sínu í vetur. Mér þótti þetta forvitnileg tilraun hjá Walsh og hef því ákveðið að feta í fótspor hans.
Ég setti því saman könnun, sambærilega við þá sem Walsh bjó til og birti nú hér á vefnum með aðstoð Google Docs. Vonandi sjá sem flestir sér fært að taka þátt.
Ég setti því saman könnun, sambærilega við þá sem Walsh bjó til og birti nú hér á vefnum með aðstoð Google Docs. Vonandi sjá sem flestir sér fært að taka þátt.
Hér má sjá niðurstöðurnar úr könnun Walsh. Ég mun birta niðurstöðurnar úr minni útgáfu hér á vefnum.
Myndin sem fylgir færslunni er fengin af Flickr.


