Close

Svona gerum við

Námsefni

Aukin samskipti í Netnámi með Olark

Olark er nýr og áhugaverður vettvangur fyrir rauntímaspjall, einskonar veflægt MSN líkt og Meebo sem ég hef áður fjallað um. Olark spjallglugga má með lítilli fyrirhöfn birta á hvaða vef sem er og tengja algengum spjallforritum, s.s. Google Talk, Pidgin eða Digsby.

Olark er kjörin leið til þess að auka gagnvirkni í netbundnu námi með því að bjóða upp á rauntímaspjall við kennara. Það er að mínu viti mun hentugri lausn en byggð er inn í flest námsstjórnunarkerfi, auk þess er tengingin við spjallforrit góður kostur. Ég tengdi Olark við Google Talk spjallvettvanginn við Gmail og það virkar fínt. Nú þe

Eitt af því sem heillar mig við Olark er vandaður framsetningarmátinn, en spjallglugginn hvílir yfir innihaldi vefsins neðst í hægra horni skjásins og truflar því notandann lítið.

olark-moodle1

Þegar ekki er verið að spjalla birtist einungis stutt ávarp sem svo stækkar í spjallglugga þegar smellt er á. Spjallglugginn helst fastur á sínum stað þegar vefsíðunni er skrunað upp eða niður. Annar stór kostur felst í því að hægt er að setja eigin texta í stað sjálfgefins ávarps sem er á ensku.

olark-moodle2

Olark byggir á freemium viðskiptamódelinu þar sem grunnþjónustan er öllum endurgjaldslaus en aukin virkni er fáanleg gegn áskrift. Áskrift gefur t.a.m. kost á enn frekari útlitsmótun. Hér má sjá góðan samanburð á áskriftarmöguleikum.

Olark og Moodle

Mjög einfalt reyndist að tengja Olark við Moodle og birta innan einstaka áfanga. Það gerði ég með því að búa til nýja HTML blokk og líma inn í hana kóða frá Olark.



Tengt efni

Skráðu athugasemd