Google Wave – fyrstu kynni
Mikið var ég glaður þegar ég opnaði tölvupóstinn minn í morgun og sá að þar biðu mín boð frá Google um að taka þátt í prófunum á Google Wave samskiptavettvangnum.
Ef ég á að reyna að lýsa Google Wave í sem fæstum orðum má segja að þar hafi verið sameinað í einn vettvang áður aðskildar samskiptaleiðir, þ.e. tölvupóstur, hefðbundinn umræðuvefur og rauntímaspjall og jafnvel Wiki. Google Wave er auk þess opinn vettvangur í víðum skilningi þess orðs.

Þjónustan byggir á opnum hugbúnaði (e. open source) en við hann má ennfremur forrita hvers kyns græjur (e. gadgets) og róbóta (e. robots) sem aukið getað notagildið eða eru bara til skemmtunar. Ég mæli með neðangreindu myndskeiði til að skilja betur á því hvað þarna er á ferðinni.
Það er ekki alveg augljóst við fyrstu kynni hvernig Google Wave í raun virkar og ég var smá tíma að átta mig á því hvernig ég ætti að bera mig að í þessu nýstárlega umhverfi. En þegar ég náði áttum sannfærðist ég um að þessi tækni gæti hæglega valdið straumhvörfum í samskiptum á Netinu. Tölvupóstur virkar afskaplega gamaldags við hliðina á Google Wave. Ég segi gæti valdið straumhvörfum því það fer allt eftir því hvort netverjar taki Wave fagnandi. Samskiptavettvangur er lítils virði ef fáir eru notendurnir. Nú efast ég ekki um að tölvunerðirnir hópist um þessa nýjung en Google verður að vinna til sín hinn venjulega notanda og það gæti reynst þrautinni þyngri. Wave vinnur einnig best á Google Chrome og sá vefskoðari er ekki með ýkja mikla markaðshlutdeild því miður.



October 2nd, 2009 at 5:26
Heyrðu áttu þá nokkuð invite? (sendu á netfangið)
October 7th, 2009 at 7:51
Hæ – ég er líka að leita að invite
Væri frábært ef þú átt ennþá – eða getur vísað mér á einhvern sem á svoleiðis!
Ég er annars með sveinng hjá gmail punktur com
October 16th, 2009 at 10:55
Já, það gæti orðið erfitt að fá notendur – right! Ég myndi selja köttinn minn fyrir invite.
October 17th, 2009 at 9:23
Hæ hæ
Þetta er áhugavert og væri gaman að prófa.
Eigið þið invite fyrir mig???
Endilega sendið mér það á kollahjalta hjá gmail punktur com
December 12th, 2009 at 2:26
Ég er kominn inn í þetta, finn aðeins einn vin (samstarfsfélaga) og finn enga invite-möguleika. Ég fékk inni með venjulegri umsókn á einum sólarhring. Held að það væri gaman að stofna hóp íslenskra ut-áhugamanna í þessu.