Close

Svona gerum við

Námsefni

Skemmtileg og skapandi skrif með Storybird

17 Oct Uncategorized | Athugasemdir
Storybird er nýr og forvitnilegur vettvangur á Netinu þar sem skáld af öllum stærðum og gerðum geta tekið þátt í skapandi skrifum og nýtt til þess vandað myndefni frá ólíkum listamönnum.

Hugmyndin að baki Storybird er einföld en um leið mjög sniðug. Myndlistafólk leggur til myndefni sem innskráðir notendur vefsins fá aðgang að til að smíða stuttar sögur eða ljóð. Notendaviðmótið gæti varla verið aðgengilegra. Til þess að skapa nýja sögu er fyrst valinn höfundur myndefnis og að því loknu opnast ritill þar sem hægt er að draga myndefnið á blað og skrifa texta. Fleiri en einn höfundur geta verið að hverri sögu. Storybird er því ágætis samvinnuvettvangur sem gæti komið sér vel í skólastarfi.

storybird1

Hvert einstakt verk fær sína eigin síðu á Storybird vefnum. Þar er hægt að fá upplýsingar um höfund, lesa söguna og skrá athugasemdir (e. comments). Hér er dæmi um slíka síðu.

Þegar þetta er skrifað hafa alls 1300 slíkar sögur verið settar saman og fer þeim ört fjölgandi. Skráðir notendur eru rúmlega 4400 og 13 myndlistamenn hafa veitt aðgang að alls 800 myndum. Aðstandendur vefsins ætla sér að fjölga myndlistamönnum þannig að búast má við auknu myndefni vonandi sem fyrst.

Í náinni framtíð verður hægt að panta sögur af Storybird á pappír. Ég á eftir að kanna hvernig greiðslum til höfunda mynda og texta verður háttað. Einnig þarf ég að skoða betur höfundarréttarákvæði vefsins.


Tengt efni

Skráðu athugasemd