Close

Svona gerum við

Námsefni

Kindle eða Nook?

26 Oct Uncategorized | 3 athugasemdir
Kindle frá Amazon varð fyrstur rafbókalesara til að slá almennilega í gegn; svo rækilega að græjan var að sögn mest selda varan á Amazon.com á síðasta ári. Staðfestar sölutölur eru reyndar ekki aðgengilegar. Kindle er engu að síður áþreifanlegasti vitnisburður þeirra sem telja tíma rafbóka loksins runninn upp. O nú hefur bóksalinn Barnes and Noble siglt í kjölfar Kindle með eigin lesara, Nook.

Kindle er ekki fyrsti vélbúnaðurinn sérstaklega til þess hannaður að sýsla með bækur, en sá eini sem náð hefur almennilegri fótfestu á markaði. Viðskiptamódelið er enda þrautreynt og grundvallast á sömu lögmálum og ofurvinsælir tónlistarspilarar Apple, þ.e. vélbúnaður + efnisveita. Notendur Kindle kaupa bækur á netverslun Amazon líkt og eigendur iPod kaupa tónlist á iTunes. Amazon hefur meira að segja fetað vandlega í fótspor Apple og læst efni frá sér í lokuðum staðli sem þeir nefna AZW. Því er nú ver og miður. Opnir staðlar eru samt ýmsir til fyrir rafbækur og nægir þar að nefna ePub sem þróaður var af “International Digital Publishing Forum” og er óháður einstaka vélbúnaði.

Nook er metnaðarfull tilraun stærsta bóksala Bandaríkjanna, Barnes & Noble, til að skapa eigin rafbókalesara og ef eitthvað er að marka fyrstu viðbrögð þá er hér á ferðinni verðugur keppinautur sem Jeff Bezos framkvæmdastjóri Amazon er tilneyddur að taka alvarlega. Hitt verður að vísu að segjast að Nook mun ekki prýða hillur Barnes og Noble bókabúðanna fyrr en í lok nóvember þannig að fæstir sem um hann fjalla hafa getað sannreynt ágæti búnaðarins. Á blaðamannafundi þar sem Nook var forsýndur var þess t.a.m. vandlega gætt að enginn fengi að snerta gripinn. Þangað til verðum við að láta okkur duga tæknlegar lýsingar, myndir og myndskeið.

Kindle og Nook eru sambærilegir hvað marga mikilvæga þætti varðar:

  • Kosta báðir 259 dollara
  • Báðir með 3G
  • Báðir með 6″ skjá
  • Geta báðir spilað mp3 skrár
  • Báðir með 2GB innraminni

Það sem skilur á milli þeirra gæti hins vegar gert gæfumuninn í huga væntanlegra viðskiptavina. Kindle er nú þegar til í alþjóðlegri útgáfu á meðan forsvarsmenn Barnes & Noble eiga erfitt með að svara því hvenær þeir opna netverslun sína viðskiptavinum utan Bandaríkjanna. Ég get s.s. mætt í hvaða bókaverslun Barnes & Noble sem er í Bandaríkjunum og verslað mér bækur að vild með kreditkortinu mínu, en þegar ég reyni að kaupa sömu vöru á stafrænu sniði á Netinu á Íslandi (eða annars staðar í heiminum) þá er mér hafnað. Ég get ekki einu sinni sótt ókeypis bækur á vef Barnes og Noble sem þó eru þar í boði Google Books. Gjafarkort virka heldur ekki þegar rafbækur eru keyptar á vef Barnes & Nobles.

Kindle styður hvorki PDF né ePub staðalinn ólíkt Nook og munu margir vafalítið telja það Nook til tekna að styðja svo opna og algenga staðla. Enn á þó eftir að koma í ljós hvernig birtingarmáta PDF skráa í Nook er háttað, þ.e. hvort textinn nái að flæða eðlilega á svo litlum skjá (e. reflowable). Það er staðreynd að PDF skráarsniðið hentar illa til birtingar í smátækjum. Sjálfsagt er að benda á að Kindle eigendur hafa kost á því að breyta skjölum yfir á Kindle sniðið, annað hvort sjálfir eða í gegnum þjónustu hjá Amazon. Einnig skal bent á það að bækur sem Barnes & Noble selur á Netinu eru aðgangsvarðar (sjá DRM) líkt og stafrænar bækur á Amazon. Svo eru þeir tæknilega sinnuðu mjög uppveðraðir af því að Nook nýtir Android stýrikerfið frá Google.

Tilkoma Nook er að mínu viti enn ein sönnun þess að stafrænar bækur eru komnar til að vera. Sífellt vandaðri vélbúnaður og lægra verð á stafrænum bókum en hefðbundnum hefur gert það að verkum að þær eru orðnar raunverulegur valkostur bókaunnenda. Sjálfur er ég mjög spenntur fyrir Nook, en á ennþá eftir að kynna mér betur nýjasta lesarann frá Sony og jafnvel fleiri tegundir. Loks er það lesarinn frá Apple sem er á leiðinni ef eitthvað er að marka slúðrið á Netinu og gæti vel valdið straumhvörfum líkt og iPhone á sínum tíma. Er það nema von að maður sé tvístígandi?

ps.
Er til einhver almennileg þýðing á enska hugtakinu “ebook”?


Tengt efni

  1. Bergsteinn Sigurðsson10-26-09

    Er það ekki bara netbók?

  2. Hildur María11-11-10

    eða rafbók.

  3. Hlédís01-19-12

    Netbók er stutt og laggott orð

Skráðu athugasemd